Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Drápuhlíð 24
Skemmtileg risíbúð sem er mun stærri en fermetrarnir segja til um á þessum frábæra stað í hlíðunum.Falleg, björt og töluvert endurnýjuð fjögurra herbergja risíbúð á eftirsóttum stað í Reykjavík. Íbúðin er skráð 51,9 m² skv. fasteignaskrá, en hluti íbúðarinnar er undir súð og þessvegna er stærð íbúðarinnar töluvert meiri en fermetratalan segir til um. Um er að ræða forstofu / hol, gott alrými (stofa, borðstofa og eldhús), þrjú svefnherbergi og baðherbergi innan íbúðar. Þvottahús er svo í sameign hússins. Gott þakrými er í risi íbúðarinnar sem nýtist vel sem geymslurými í dag, ásamt lokuðum geymslurýmum undir súð.
Nánari lýsing: Forstofa / hol er parketlagt rými og þaðan er gengið inn í helstu vistarverur íbúðar. Þaðan er einnig uppgengt í þakrými sem nýtist sem geymsla.
Stofa / borðstofa eru í björtu alrými ásamt eldhúsi. Parket á gólfum.
Eldhús er í alrými hússins. Falleg hvít innrétting með dökkri borðplötu. Bogadreginn gluggi setur mikinn svip á eldhúsið og gefur góða birtu í alrýmið.
Svefnherbergi eru þrjú talsins. Ágætlega rúmgóð og björt með parketi á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt að hluta. Vaskinnréting, baðkar, salerni og handklæðaofn.
Geymslurými eru innan íbúðar undir súð með góðu geymsluplássi, einnig í þakrými.
Þvottahús er sameiginlegt, staðsett í snyrtilegri sameign í kjallara hússins. Einnig eru þar sameiginlegar hjóla og vagnageymslur.
Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða eign, sem svo sannarlega er stærri en gera má ráð fyrir miðað við fermetratölu. Húsið er á eftirsóttum og barnvænum stað í Hlíðunum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, leik- og grunnskóla. Frábær fyrstu kaup!
Upplýsingar frá seljanda um framkvæmdir og viðhald síðustu ára:2021 var garður yfirfarinn, skipt um jarðveg og nýjar þökur.
2018 var eldhús íbúðar endurnýjað, sett ný gólfefni, rafmagnstenglar og rofar íbúðar var einnig endurnýjað, ný rafmagnstafla í íbúð og sameign. Nýjir ofnar og einnig settur dyrasími með myndavél.
2017 var húsið drenað og skólp endurnýjað.
2011 voru viðgerðir á ytra byrði og húsið steinað. Sama ár var skipt um glugga og gler.
2005 var þak endurnýjað, skipt um járn og pappa.
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is