Föstudagur 24. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 24. apríl 2026

Refsholt 60

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
Verð
Tilboð
Fasteignamat
2.980.000 kr.
JR
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
Eignir í sölu
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2333578
Landnúmer
212901
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur

Miklaborg kynnir: Nýtt heilsárshús í byggingu á einstakri útsýnislóð í Hálsaskógi

Hér gefst tækifæri til að eignast nýtt 110 fm sumar- eða heilsárshús þar sem náttúran nýtur sín til fulls. Úr stofunni og af væntanlegum palli blasir Skessuhornið við, sem skapar stórbrotið útsýni og stemmningu hvort sem setið er inni í hlýjunni eða úti á verönd. Húsið er nú í byggingu og er stærsta hluta grunnvinnunnar þegar lokið.


Sjá staðsetningu hér https://ja.is/kort/?type=aerial&page=1&q=refsholt%2060&x=373861&y=453295&nz=13.57


Óskað er tilboða.


Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is

Helstu staðreyndir:

  • Húsið: 110 fm vandað einingarhús frá Framehouse (hannað af Valbirni hjá M2hús), sem þekkt er á alþjóðavísu fyrir háa gæðastaðla. Frábær rýmistilfinning er í húsinu með allt að 4,25 m lofthæð upp í mæni.
  • Byggingarstig: Steyptur grunnur og gólfplata þar sem lagnir fyrir gólfhita eru þegar komnar.
  • Lóðin: 4.999 fm kjarri vaxin leigulóð (30 ára erfðafesta). Búið er að jarðvegsskipta umhverfis húsið, svo svæðið er tilbúið fyrir pallasmíði.
  • Möguleikar til framtíðar: Samkvæmt lóðarleigusamningi er heimilt að stækka húsið upp í 150 fm og bæta við allt að 15 fm geymslu eða skúr við veröndina.

Þetta er frábær kostur fyrir þá sem vilja taka við sterku og vönduðu grunnhúsi á fallegum stað og klára fráganginn eftir sínu eigin höfði.


Skilalýsing á eigninni:

  • Húsið verður ekki klætt að utan en lektur komnar fyrir liggjandi járn - klæðningu.
  •  Þakjárn er nýkomið á húsið.
  • Húsið verður að hluta einangrað en öll einangrun fylgir með í kaupunun.
  • Gips fyrir innveggi fylgir. 
  • Samþykktar byggingateikningar fylgja - burðarþols-, arkítekta-, rafmagns- og lagnateikningar.
  • Kaldavatnið er komið við lóðarmörk. 
  • Gluggar og útihurðir fylgja ekki með í þessu verði, tilboð liggur fyrir sem hægt er að fá upplýsingar frá fasteignasala með því að SMELLA HÉR.
  • Búið er að jarðvegsskipta fyrir pallasmíði en pallar fylgja ekki.
  • Drenmöl hefur verið sett við sökkul. 
  • Vatnslagnir eru komnar í gólf í eldhúsi og baðherbergi ásamt fráfallslögnum. 
  • Húsið er án allra innréttinga og gólfefna.

Það sem kaupandi þarf að horfa til:

  • Hægt er að koma á samningi á milli kaupanda og smiða og byggingastjóra á húsinu til þess að klára það.
  • Núverandi byggingastjóri fer fram á að ganga frá rakadúk og öllum rakasperrum áður en annar byggingastjóri tekur við ef kaupendur vilja skipta um byggingastjóra.
  • Samið hefur verið við alla iðnaðarmenn um framkvæmdina og við skil verður nýr eigandi að taka upp nýja samninga ef áhugi er fyrir hendi á því. 
  • Sér tæknirými er í húsinu fyrir hitakút og lagnakistur sem fylgja ekki. Reiknað er með að varmadælu sem búið er að panta en hún fylgir ekki með í þessu verði. 
  • Rotþró fylgir ekki með en hún á að vera 5500 lítrar.
  • Húsið getur verið tilbúið til afhendingar við kaupsamning.

Öll gjöld eru greidd en úttektir hafa ekki farið fram og þarf því nýr eigandi að panta úttektir og greiða fyrir þær. Vatn og bráðabirgða rafmagn verður komið.

Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laxárlundur 3
Skoða eignina Laxárlundur 3
Laxárlundur 3
641 Húsavík
89.2 m2
Sumarhús
413
503 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Bláskógar 4
Skoða eignina Bláskógar 4
Bláskógar 4
301 Akranes
45.1 m2
Sumarhús
414
973 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrarholt 22
Skoða eignina Mýrarholt 22
Mýrarholt 22
311 Borgarnes
67.6 m2
Sumarhús
412
501 þ.kr./m2
33.900.000 kr.
Skoða eignina Jötnagarðsás 10
Jötnagarðsás 10
311 Borgarnes
130 m2
Sumarhús
31
538 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin