Föstudagur 18. október
Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2024
Deila eign
Deila

Kumlamýri 2

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
205 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
169.000.000 kr.
Fermetraverð
824.390 kr./m2
Fasteignamat
77.150.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2023
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2521889
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
2 - Undirstöður
Matsstig
4 - Fokheld bygging
REMAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu afar fallegt og vel skipulagt 205 fm parhús að Kumlamýri 2.  

// HÚSIÐ ER TILBÚIÐ TIL AFHENDINGAR SAMHLIÐA KAUPSAMNINGI //

.: Kíktu í heimsókn, skoðaðu húsið í 3D :.


Húsið er staðsteypt á tveimur hæðum, einangrað að innan og steypt með svartri sjónsteypu að utan. Tobia Zambotti, innanhússhönnuður, veitti ráðgjöf við hönnun innréttinga, gólefnaval og litaval. Húsið skilast fullbúið að innan með vönduðum frágangi. Steypt bílainnkeyrsla, með snjóbræðslulögnum, tyrft lóð og steyptir stoðveggir. Húsið er úr svartri sjónsteypu sem gerir það ansi reisulegt.
 

Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Anddyri, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, sjónvarpshol, stofa/alrými, eldhús, geymsla, þvottahús og tvennar svalir.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:                                     
Anddyri: Flísar á gólfi og fataskápur. 
Geymsla: Flísar á gólfi.
Eldhús: Rúmgott, opið við stofu. Flísar á gólfi. Falleg eldhúsinnréttting með eyju. Bosch spanhelluborð í eyju með innbyggðu gufugleypi. Vaskur við glugga. Bosch bakaraofn í vinnuhæð, ásamt sambyggðum örbylgju-bakarofn. Innréttingin gerir ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél og tvöföldum ísskáp.
Stofa/alrými: Rúmgóð, opin og björt stofa með aukinni lofthæð (3m uppí 6m) Niðurlímt fiskibeinaparket á gólfi. Rennihurð út í garð. 2m opnun.
Sjónvarpshol: Niðurlímt fiskibeinaparket á gólfi. Útgengt út í bakgarð.
Hjónaherbergi 01: 19,7 fm með fataherbergi. Niðurlímt fiskibeinaparket á gólfi 
Þvottahús: Flísar á gólfi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðinnrétting, upphengt salerni og handaklæðaofn. Sérstaklega skemtilegur sturtuklefi með faldri lýsingu. Innbyggð blöndunartæki og tvöfaldur sturtuhaus.
Herbergi 02: Niðurlímt fiskibeinaparket á gólfi og fataskápur. 

Efri hæð: Opið svæði yfir stofu/alrými.
Stigi og alrými uppi: Teppalagt. Bjart rými með fjórum þakgluggum.
Herbergi 04: Teppi á gólfi og fataskápur
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Baðinnrétting, upphengt salerni, handaklæðaofn og baðkar. Flísalagt þrep upp í baðkar. Tveir þakgluggar í rýminu.
Herbergi 05: Rúmgott herbergi, 20,6 fm. Teppi á gólfi og fataskápur
Tvennar svalir: 18 fm og 3,0 fm. Frágengnar með flísakerfi.

Útveggir: Útveggir eru svört sjónsteypa annaðhvort slétt eða kúlupanils áferð, einangraðir að innan með 100 mm einangrun. 
Gluggar: Ál/trégluggar og hurðar frá Ideal combi, litarheiti Ral 9005 svart bæði að innan og utan. Fullgerðir gluggar með K-glerjum og endanlegri yfirborðsáferð.
Þak: Hallandi hefðbundið sperruþak með bárujárnsklæðningu. 
Lóðin: Tyrft lóð. Steypt bílaplan, með sorptunnuskýli og stoðveggjum. Snjóbræðslulagnir lagðar í bílaplan. 35 fm steypt verönd með skjólveggjum fyrir framan hús. Tveir tengipunktar fyrir rafhleðslustöð. 
Hitakerfi: Gólfhiti í öllum rýmum sem verður fullbúið án stýringu.
Innveggir: Innveggir eru steyptir og hlaðnir með hleðslustein. Veggir eru sparslaðir og málaðir með RAL 7004 – signal grey. Veggir í baðherbergjum eru flísalagðir að hluta en annars málaðir með RAL 7004 – signal grey.
Innréttingar: Allar innréttingar í húsinu, eldhúsinnréttingar, baðinnréttingar sem og fataskápar eru frá Parki og framleiddar af Schmidt.  
Innihurðir: Innihurðar er frá Parki. LEVEL hurðar með földum lömum og felliþröskuldum. Amsterdam húnar.
Gólfefni: Öll gólfefni eru frá Parki. BE-SQERE CONCEETE 80X80 flísar á forstofu, lagnarými , eldhúsi, gangi neðri hæðar, þvottahúsi. Niðurlímt hvíttað fiskibeinaparket á stofu, hjóna og barnaherbergi . LOMBARDO NERO 60x60 flísar á gólfum og hluta veggja baðherbergja. Teppi á stiga, alrými efri hæðar og svefnherbergjum efri hæðar.
Eldhústæki: Húsinu fylgir vönduð eldhústæki af gerðinni Bosch. Húsin eru skilað með spanhelluborði með innbyggðum gufugleypi. Blástursofn og sambyggðum baksturs - örbylgjuofn. 
Hreinlætistæki: Salerniskálar eru vegghengdar með innbyggðum vatnskassa. Sturta er með flísalögðu gólfi með vatnshalla að aflöngu niðurfalli upp við vegg. Innbyggð blöndunartæki í sturtu frá Grohe.Handklæðaofn er 60 x 112 cm, black matt. Öll hreinlætistæki eru frá Grohe, keypt hjá Byko. 
Raflagnaefni: Allt raflagnaefni frá Berker. Lýsing í sturtuklefa. Önnur lýsing ófrágengin.

Frekari upplýsingar um frágang hússins má finna í skilalýsingu seljanda.

Byggingaraðili: Heildarverk ehf.
Arkitekt: Kristjana Sigurðardóttir hjá T.ark arkitektar
Raflagnahönnun: Ice Patent ehf.
Lagnahönnun: Verkfræðistofa Jóns Kristjánssonar

Umhverfið:
Kumlamýri er ný gata á Álftanesi. Hún liggur í suðurátt frá Suðurnesvegi og frá henni kvíslast fimm botnlangar. Við hvern botnalanga standa fjögur parhús með alls átta íbúðareiningum með sameiginlegu götu-og íverusvæði í miðju.Megin hugmynd deiliskipulagsins fyrir svæðið er að viðhalda, eftir því sem verða má, því búsetulandslagi sem einkennt hefur Álftanes. Því er leitast við að húsin myndi óreglulegar þyrpingar sem umlykja sameiginleg aðkomusvæði í stað þess að þau myndi hefðbundna götumynd. Nýja hverfið liggur þétt að grónu hverfi og er því stutt í alla helstu þjónustu, svo sem skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttamiðstöð og golfvöll. Þá er fallegt útivistarsvæði allt um kring.

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 

Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason // lögmaður / löggiltur fasteignasali // E-mail: thorsteinn@remax.is // Sími: 696-0226


 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kumlamýri 12
Skoða eignina Kumlamýri 12
Kumlamýri 12
225 Garðabær
195.6 m2
Parhús
634
821 þ.kr./m2
160.500.000 kr.
Skoða eignina Kumlamýri 10
Bílskúr
Skoða eignina Kumlamýri 10
Kumlamýri 10
225 Garðabær
205 m2
Parhús
633
819 þ.kr./m2
167.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallavegur 40
Bílskúr
Skoða eignina Hjallavegur 40
Hjallavegur 40
104 Reykjavík
248.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
835
641 þ.kr./m2
159.500.000 kr.
Skoða eignina Heiðargerði 1b
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Heiðargerði 1b
Heiðargerði 1b
108 Reykjavík
239.4 m2
Parhús
826
751 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin