Mánudagur 19. október
Fasteignaleitin
Skráð 19. okt. 2026

Kambastaðir 0

EinbýlishúsSuðurland/Ölfus-816
776.5 m2
11 Herb.
4 Baðherb.
Verð
260.000.000 kr.
Fermetraverð
334.836 kr./m2
Fasteignamat
135.800.000 kr.
Brunabótamat
384.100.000 kr.
Mynd af Karl Lúðvíksson
Karl Lúðvíksson
Sölustjóri - Íbúðareignir
Byggt 2021
Garður
Pallur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2505916
Landnúmer
228523
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
CROISETTE kynnir í einkasölu einstaka eign að Kambastöðum í Ölfusi, rétt fyrir utan Hveragerði. Um er að ræða lögbýli á 2 hektara eignarlóð þar sem gert er ráð fyrir fjórum húsum: einbýlishúsi, skemmu með íbúð, yogasal/gróðurhúsi og gestahúsi. Einbýlishúsinu hefur verið skipt upp í þrjár íbúðir með sérinngöngum og skemman, sem er í byggingu, er hugsuð sem bílskúr/verkstæði ásamt fjögurra herbergja íbúð. Öll inntök og frárennslislagnir hafa verið lögð að óbyggðu húsunum. Eign sem býður upp á mikla möguleika, hvort sem er fyrir stórfjölskylduna, ferðaþjónustu eða heilsutengda starfsemi. Allar nánari upplýsingar veitir Karl Lúðvíksson Sölustjóri - Íbúðareignir, í síma 6636700, tölvupóstur kalli@croisette.is.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

Byggingarefni og frágangur
Húsin eru byggð úr límtré og yleiningum og klædd að utan með gráu bárujárni. Hurðir og gluggar eru úr áli og tvöfalt gler er í öllum gluggum. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í báðum húsunum. Samkvæmt HMS er einbýlishúsið skráð 308 fm og skemman 160,5 fm.

Einbýlishús (B1 á teikningu)
Húsið er skráð 308 fm en heildargrunnflötur er um 458 fm, þar af um 288 fm á jarðhæð og um 170 fm á efri hæð. Húsinu er skipt upp í þrjár íbúðir.
Íbúð I – sérinngangur framan á húsi, tvær hæðir
Anddyri: Gengið er inn í anddyri og þaðan inn í alrými.
Stofa og eldhús: Björt stofa og eldhús í opnu rými.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi á svefnherbergisgangi.
Hol: Hol tengir saman rými hæðarinnar.
Baðherbergi: Baðherbergi á jarðhæð.
Þvottahús: Sérþvottahús.
Efri hæð: Sjónvarpsherbergi, hol, barnaherbergi og hjónasvíta með öllu tilheyrandi. Baðherbergi ásamt tengjum og lögnum fyrir eldhúsinnréttingu, sem gefur möguleika á frekari nýtingu.

Íbúð II – sérinngangur framan á húsi, um 60 fm
Anddyri: Gengið er inn í anddyri.
Baðherbergi: Baðherbergi inn af anddyri.
Stofa og eldhús: Opið rými með stofu og eldhúsi. Útgengt er á verönd.
Svefnloft: Svefnloft með tveimur svefnplássum.

Íbúð III – sérinngangur aftan á húsi, um 30 fm
Íbúðin er öll í opnu rými og skiptist í anddyri, eldhús, baðherbergi og svefnaðstöðu.

Skemma/íbúð (B2 á teikningu)
Skemman er skráð 160,5 fm en grunnflötur er um 240 fm, þar af um 200 fm á jarðhæð og um 40 fm á efri hæð. Húsið er í byggingu og er að komast á fokheldisstig. Allir gluggar og hurðir eru komnir nema innkeyrsluhurð. Vatn, rafmagn, tengd aðaltafla og skolp er frágengið og allar raflagnir eru lagðar í plötuna, svo stór hluti raflagna er tilbúinn. Í öðrum enda hússins er gert ráð fyrir stórri innkeyrsluhurð og gönguhurð og er sá hluti hugsaður sem bílskúr eða verkstæði. Í hinum endanum er gert ráð fyrir fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum.
Óbyggð hús á lóðinni

Yogasalur/gróðurhús (B3 á teikningu): Hugsað sem yogasalur og gróðurhús eða lítill veitingastaður. Grunnflötur um 195 fm en skv. teikningu 149,8 fm, sem skiptist í um 115 fm yogasal og um 80 fm gróðurhús.

Gestahús (B4 á teikningu): Fimm herbergja gistihús. Grunnflötur um 91 fm en skv. teikningu 77,9 fm.

Öll inntök og frárennslislagnir hafa verið lögð að báðum óbyggðu húsunum. Sjá teikningu á síðustu mynd.

Lóðin:
Lóðin er 2 hektara eignarlóð og er eignin skráð sem lögbýli.

Staðsetning:
Kambastaðir eru á fallegum stað í Ölfusi, rétt fyrir utan Hveragerði. Þaðan er stutt í alla helstu þjónustu í Hveragerði og á Selfossi og aðeins um hálftíma akstur til höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson Sölustjóri - Íbúðareignir, í síma 6636700, tölvupóstur kalli@croisette.is.

Eignin Kambastaðir er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-5916, birt stærð 776.5 fm.
CROISETTE ICELAND EHF. kynnir eignina Kambastaðir 0, 816 Ölfus, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 250-5916 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette - Knight Frank fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/04/2024117.300.000 kr.58.650.000 kr.468.5 m2125.186 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2021
308 m2
Fasteignanúmer
2505916
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
109.700.000 kr.
Lóðarmat
26.100.000 kr.
Fasteignamat samtals
135.800.000 kr.
Brunabótamat
192.050.000 kr.
160.5 m2
Fasteignanúmer
2505916
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bleikjulækur 29
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Bleikjulækur 29
Bleikjulækur 29
800 Selfoss
98 m2
Raðhús
413
713 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Borgarheiði 4V
Á einni hæð
Hleðslustöð
Opið hús:24. okt. kl 13:00-14:00
Skoða eignina Borgarheiði 4V
Borgarheiði 4V
810 Hveragerði
95,9 m2
Raðhús
412
656 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Þelamörk 47C, endaraðhús
Á einni hæð
Þelamörk 47C, endaraðhús
810 Hveragerði
129 m2
Raðhús
312
678 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Þelamörk 47C, endaraðhús
Þelamörk 47C, endaraðhús
810 Hveragerði
129 m2
Raðhús
312
678 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin