Þriðjudagur 10. mars
Fasteignaleitin
Skráð 26. sept. 2025

Merkurlaut 14

SumarhúsSuðurland/Selfoss-803
70 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.900.000 kr.
Fermetraverð
755.714 kr./m2
Fasteignamat
38.100.000 kr.
Brunabótamat
45.600.000 kr.
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2201673
Landnúmer
166423
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Inngangur
Margir inngangar
Þorsteinn lgfs, Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: Ævintýraland rétt við Selfoss – Fallegt og vel viðhaldið sumarhús á eignarlóð með stórum trjám og miklum gróðri steinsnar frá Selfossi, aðeins um 15 mínútna akstur. Lóðin er einstök með stóru trjám allt i kring sem veitir sérlega gott næði og skjól frá öðrum bústöðum hverfisins. Fyrir um 10 árum var tekin inn hitaveita í bústaðinn og er hann hitaður með vatnsofnum. Einnig er búið að setja forhitara og lokað kerfi á neysluvatnið og þvi upphitað kalt vatn í öllum krönum. Ljósleiðari var tengdur inn í bústaðinn fyrir skömmu.  Aðalhúsið er skráð 70 m2 (með auka svefnlofti sirka 12 m2 að gólffleti) með stórri verönd sem snýr til suðurs og vesturs að mestu, hitaveitu pottur er á veröndinni og fallegt hvít grindverk umlykur hana. Á veröndinni er einnig frábært geymsluskúr  um 9 m2 upphitaður með hitaveitu. Að auki er á lóðinni gámahús um 30 m2 upphitað hitaveitu, bílskúr um 21 m2, geymsluskúr á steyptum sökkli um 14 m2 og tveir litlir geymsluskúrar um 2 m2 og 4 m2. Samanlagðir heildarfermetrar allra nýtanlegra rýma er því um 160 m2 talsins. 
Húsið skiptist í: forstofu, alrými sem rúmar eldhús, setustofu og borðstofu, salerni með sturtu, barnaherbergi, mjög stórt hjónaherbergi, þvottaaðstöðu og óskráð svefnloft sem er um 12 m2 að gólffleti undir súð. 

Allar nánari upplýsingar veita Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700steini@remax.is og Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is


Einstök eign rétt utan Selfoss, aðeins 44 mínútur frá Reykjavík! Þetta er sannkallað ævintýraland þar sem náttúran, rómantíkin og útivist mætast. Fullkomin staður fyrir þá sem vilja rækta grænmeti, njóta gönguferða, stunda golfið eða einfaldlega slaka á í friðsælu umhverfi.
Stutt er í fjölbreytt úrval golfvalla, sem dæmi: Golfvöllur Selfossi, Flúðum, Hellu, Öndverðunesi og Kiðjabergi svo eitthvað sé nefnt. 

Nánari lýsing aðalhúss:
Komið er inn i forstofu með harðparketi á gólfi og fatahengi. Alrými er rúmgott með harðparketi á gólfi, stórum gluggum i þrjár áttir og hurð sem opnar út á veröndina fyrir frama bústaðinn. Eldhús er með innréttingu í U með efri skápum á einn vegg, glugga á eina hlið og eyju sem snýr yfir í alrýmið. Innréttingin er úr dökkum við með ljósri borðplötu. kamína er í rýminu. Baðherbergið er með glugga, sturtuklefa, hvítri innréttingu með handlaug og salerni. Hjónaherbergið er sérlega stórt með harðparketi á gólfi, góðum fataskápum, gluggum í 3 áttir og hurð með glugga í þá fjórðu sem leiðir út á veröndina í átt að heita pottinum. Fyrir framan hjónaherbergið er útskot með glugga og tengi fyrir þvottavél. Barnaherbergið er með harðparketi á gólfi og rúmar einbreitt rúm. Stigi er upp á milliloftið rétt fyrir innan forstofuna. þegar komið er upp er veggur og hurð sem stúka af sér svefnherbergi með glugga á loftinu, hægt að hafa tvíbreiða dýnu.  
Nánari lýsing Geymsluskúr á verönd:
Geymsluskúr um 9 m2 með tengdum hitaveituofni, rafmagni og góðri vinnuaðstöðu. 
Nánari lýsing gámahús + bílskúr:
Gámahúsið eru tveir samsettir gámar sem búið er að opna á milli að hluta og útbúa eitt aflokað auka rými að innan. Húsið er samanlagt um 30 m2, vel einangrað og upphitað með rafmagnsofni. Í dag er rýmið nýtt sem æfingaaðstaða en hægt að að nýta þá á marga mismunandi vegu. Áfast við gámahúsið er óupphitaður bílskúr 21 m2 með malargólfi og bílskúrshurð. Húsin eru klædd grænu báruáli og þak þess einnig og fellur það því vel inn í umhverfið. 
Nánari lýsing auka húss á lóð:
Aukahúsið er um 14 m2 timburhús á steyptum grunni. Húsið er í dag nýtt sem vélageymsla fyrir sláttutraktor og fleira. Húsið er einangrað með tengdu rafmagni og góðri loftun. 
Nánari lýsing 2 x auka skúrar:
Tveir litlir auka skúrar eru á lóðinni. Annar er rétt við bílastæðin og hinn í garðinum fyrir framan veröndina. 
Fótboltamark er á grasflöt rétt við bílastæðin. 
John Deere sláttutraktor fylgja með í kaupum. 



Þetta er eini sumarhúsið á sölu í 803 Selfoss – draumaland fyrir þá sem vilja náttúru, útivist og kósý rómantík í einum pakka!

Allar nánari upplýsingar veita Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700steini@remax.is og Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
RE/MAX
http://www.remax.is

Myndir (66)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurmói 2
Skoða eignina Víkurmói 2
Víkurmói 2
800 Selfoss
78.2 m2
Fjölbýlishús
312
689 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Skarðshlíð 27 íbúð 302
Skarðshlíð 27 íbúð 302
603 Akureyri
85.9 m2
Fjölbýlishús
312
569 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðargerði 5
Opið hús:11. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Heiðargerði 5
Heiðargerði 5
190 Vogar
78 m2
Fjölbýlishús
312
640 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Móavellir 6 íbúð 104
Móavellir 6 íbúð 104
260 Reykjanesbær
79.7 m2
Fjölbýlishús
211
742 þ.kr./m2
59.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin