Eignamiðlun kynnir:
Falleg og töluvert endurnýjuð endaíbúð á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Álftaland 7 í Fossvoginum. Eignin er skráð alls 119,4 fm og skiptist í forstofu, eldhús opið til borðstofu og stofu, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Bætt hefur verið við þriðja svefnrýminu en það er gluggalaust og ekki á teikningu. Yfirbyggðar svalir til suðurs úr stofu og svalir úr hjónaherbergi til vesturs. Í sameign er einnig auka svefnherbergi sem fylgir íbúð með aðgangi að sameiginlegu salerni. Sérgeymsla íbúðar er staðsett í sameign og sameiginlegt þvottahús ásamt hjóla- og vagnageymslu. Eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og fallegar göngu- og hjólaleiðir. Íbúðin er laus við kaupsamning.**Sækja söluyfirlit**Nánari lýsing: Aðkoman að húsinu er mjög snyrtileg og aðeins ein íbúð er á hæð (einungis fimm íbúðir í húsinu). Gluggar eru á þrjá vegu í íbúðinni og er hún því einstaklega björt. Glæsilegt útsýni til suðurs og víðar.
Íbúðin er skráð 100,5 fm, svefnherbergi í sameign 13,2 fm. og sérgeymsla 5,7 fm. Samtals birt stærð eignarinnar 119,4 fm. og að auki hlutdeild í sameign.
Forstofa er með tvöföldum nýlegum fataskáp.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað og með fallegri ljósri vaskinnréttingu með góðu skápaplássi, sturta með glerþili og upphengt salerni. Flísar eru á gólfum og vegg að hluta, góður opnanlegur gluggi.
Eldhús er nýlega endurnýjað með fallegum, stílhreinum innréttingum og kvartssteinn á borðum. Mjög gott skápapláss er í innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og einnig tækjaskápur. Í eldhúseyju er spanhelluborð og vifta.
Borðstofa og stofa er í rúmgóðu og björtu alrými, stórir gluggar með glæsilegu útsýni. Útgengt er út á svalir til suðurs með svalarlokun.
Hjónaherbergi (1) er mjög rúmgott og bjart með miklu skápaplássi, parket á gólfum. Út hjónaherbergi er útgengt út á vestur svalir.
Svefnherbergi (2) er einnig mjög rúmgott og bjart með tvöföldum fataskáp, parket á gólfum.
Svefnherbergi (3) er staðsett í sameign um 13,7 fm. að stærð (skráð sem geymsla) með opnanlegum glugga og nýlegu fallegu harðparketi á gólfi. Aðgengi er að sameiginlegri salernisaðstöðu í sameign.
Sérgeymsla íbúðar er 5,7 fm. að stærð, staðsett í sameign.
Þvottahús er sameiginlegt, mjög snyrtilegt þar sem hver og einn er með tengi fyrir sína vél. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús.
Garður er sameiginlegur, mjög snyrtilegur með hellulagðri verönd bakatil, tyrfð og með trjágróðri, sjávargrjót er upp við hús.
Helstu endurbætur og viðhald síðustu ára2026: Austurhlið hússins var máluð.
2025: Múrviðgerðir á austurhlið og skipt um gler að hluta.
2024: Parket íbúðar pússað upp og lakkað og settir nýjir fataskápar að hluta.
2022: Eldhús endurnýjað.
2020-2021: Húsið sprunguviðgert og málað, svalir endurmúraðar og sett ný útiljós á svalir. Skipt var um þrýstijafnara á heitu vatni í sameign. Tréverk endurnýjað í þakkanti.
2018: Baðherbergi gert upp.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.isAthugið að seljandi eignast íbúðina í makaskiptum og hefur því aldrei búið í eigninni.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook