Falleg, björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð í tvíbýlishúsi við Lækjarfit 1 í Garðabæ.- Glæsilegur sólpallur og stór fallegur garður.
- Stutt gönguleið í skóla, leikskóla, verslun og aðra þjónustu.
- Rúmgóð 104,2 fm eign með útigeymslu og geymslulofti.
Birt stærð skv. HMS er 104,2m2.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, alrými, baðherbergi og þvottahús. Úr alrýminu er útgengt á glæsilegan sól pall sem snýr að fallegum garði. Á lóðinni er einnig snyrtileg útigeymsla með litlu geymslulofti sem nýtist vel. Hér er um að ræða einstaklega snyrtilega og rúmgóða eign á frábærum stað í Garðabæ, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og útivistarsvæði hverfisins.Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir astmf. S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing eignarForstofaBjört með glugga, flísalögðu gólfi og gólfhita.
Stofa/borðstofaBjört og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu alrými sem skapar einstaklega góða birtu og notalegt rými. Úr stofu er útgengt á glæsilegan sólpall og þaðan út í fallegan garð.
EldhúsMjög bjart og rúmgott. Flísar á gólfi.
BaðherbergiRúmgott með opnanlegum glugga, vaski í góðri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, flísar á gólfi.
SvefnherbergiRúmgóð með fallegri náttúrulegri birtu og útsýni í fallega garðinn.
Hjónaherbergi:
Rúmgott og bjart með parketi á gólfi.
Þvottahús:Er innan íbúðar.
Garður og útigeymslaGarður er stór og fallegur, útigeymsla er með litlu geymslulofti.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.