Miðvikudagur 18. mars
Fasteignaleitin
Skráð 19. des. 2025

Klausturhvammur 13

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
283.7 m2
9 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
153.500.000 kr.
Fermetraverð
541.065 kr./m2
Fasteignamat
146.350.000 kr.
Brunabótamat
135.250.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2076961
Landnúmer
121407
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunaleg
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunaleg
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir og verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
* Eignin er seld og er í fjármögnun*

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt 283,7 fermetra raðhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr og 67,5 fermetra 2ja herbergja aukaíbúð á jarðhæð á eftirsóttum og friðsælum stað við Klausturhvamm í Hafnarfirði. Afgirt viðarverönd með heitum potti er við framhlið hússins og stór garður með stórri viðarverönd á baklóð þar sem gengið er inn í aukaíbúðina. 

Húsið skiptist þannig: forstofa, hol, eldhús, búr, stofa, borðstofa, hjónaherbergi, sjónvarpsstofa, þrjú barnaherbergi, tvö baðherbergi og bílskúr. Á jarðhæð hússins garðmegin er rúmgóð 2ja herbergja íbúð sem er í útleigu og skiptist þannig: forstofa, stofa, svefnherbergi, eldhús og baðherbergi, ásamt kaldri útigeymslu.


Lýsing: 

Forstofa, flísalögð með fataskápum.
Þvottaherbergi, flísalagt með glugga og innréttingu, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hol, flísalagt og rúmgott. Úr holi er stigi upp á efri hæð hússins.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, er með gólfhita, upphengt wc, innrétting og flísalögð sturta.
Eldhús, flísalagt og rúmgott með góðri borðaðstöðu og stóru búri. Fallegar hvítar innréttingar með viðarklæðningu á hluta veggja og tengi fyrir uppþvottavél.
Búr, inn af eldhúsi, flísalagt með hillum.
Borðstofa, parketlögð og útgengi á stórar svalir með fallegu útsýni og tröppum niður í garð. 
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með aukinni lofthæð og fallegum arni.
Hjónaherbergi, mjög rúmgott, parketlagt og með fataherbergi inn af með góðri viðarinnréttingu, útgengi er á stórar svalir og aðgegni í garð.

Gengið er upp á efri hæð um parketlagðan stiga úr holi og opið er frá gangi efri hæðar niður í stofu.

Fjölskyldurými / sjónvarpsstofa, parketlögð, rúmgóð og að hluta undir súð.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc, handklæðaofn, og baðkar með sturtu. 
Barnaherbergi I, parketlagt með útgengi á svalir með fallegu útsýni.
Barnaherbergi II, parketlagt
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott með fataskáp.
Fataskápur, rúmgóður, inngengur og parketlagður.
Tvær góðar geymslur eru undir súð, málað gólf.
Bílskúr er með rafmagni, hita og rennandi vatni. Er parketlagður að hluta sem var áður nýtt sem herbergi.

Lýsing aukaíbúðar:
Forstofa, flísalögð og með fatahengi.
Eldhús, parketlagt með góðri borðaaðstöðu, hvítar Ikea innréttingar með tengi fyrir uppþvottavél.
Herbergi, parketlagt og með fataskáp.
Stofa, mjög rúmgóð og parketlögð.

Húsið að utan virðist vera í nokkuð góðu ástandi og bílastæði er fyrir 3 bíla á hellulögðu upphituðu bílaplani við hús. Þá eru næg bílastæði í botnlanga götunnar.

Staðsetning eignarinnar er góð á mjög rólegum og eftirsóttum stað við Klausturhvamm í Hafnarfirði þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, framhaldsskóla, verslanir, þjónustu o.fl. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurgata 3
Bílskúr
Skoða eignina Víkurgata 3
Víkurgata 3
210 Garðabær
228.9 m2
Raðhús
624
872 þ.kr./m2
199.500.000 kr.
Skoða eignina Furuás 9
Bílskúr
Skoða eignina Furuás 9
Furuás 9
221 Hafnarfjörður
251.9 m2
Parhús
614
674 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 24 íb. 501
Bílastæði
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Áshamar 24 íb. 501
221 Hafnarfjörður
140.9 m2
Fjölbýlishús
423
922 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 002
Lautargata 5 íb. 002
210 Garðabær
139.3 m2
Fjölbýlishús
413
947 þ.kr./m2
131.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin