LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr við Hamrakór 12 í Kópavogi. Húsið er skráð samtals 228,5 m2. Þar af er húsið sjálft 187,3 m2 og bílskúrinn er 41,2 m2. Tvö baðherbergi, fjögur rúmgóð svefnherbergi, þvottahús, stofur þar sem mikið útsýnis nýtur við og eldhús, sem er hálf opið inn í stofur. Verandir fyrir framan og aftan hús. Fasteignamat 2025 verður 149.550.000.Nánari lýsing neðri hæð.Forstofa með flísalögðu gólfi og innbyggðum eikarfataskáp.
Bílskúr er tvöfaldur með rafmagnsopnurum, geymsla er innaf bílskúr.
Holið er flísalagt með stórum glugga sem gefur fallega birtu í rýmið. Útgengi út á timburverönd og þaðan út á grasivaxna lóð með skjólveggjum.
Tvö rúmgóð herbergi með plankaparketi á gólfi. Bæði 9,2 m2
Þvottahús með flísalögðu gólfi og opnum hirslum ásamt hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum nánast upp í loft, Hvít innrétting með ljúflokunum á skúffum og skáp til hliðar ásamt stórum spegli, handklæðaofn og upphengt salerni, og nýlegur sturtuklefi.
Efri hæð.Holið er flísalagt með útgengi út á svalir til norðurs.
Baðherbergið með
flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, hvít innrétting með ljúflokunum á skúffum og spegli fyrir ofan, upphengt salerni og handklæðaofn.
Barnaherbergi með plankaparketi á gólfi og hvítum fataskáp með rennihurðum.(10,9 m2 )
Hjónaherbergi með plankaparketi á gólfi og innaf þvi er fataherbergi með góðum hirslum og rennihurð skilur rýmin að. ( 12,1 m2 )
Stofan /borðstofa er rúmgóð með plankaparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir til suð-vesturs, fallegir stórir gluggar sem gefa fallega birtu í rýmið.
Eldhúsið er opið inn í stofu með vandaðri innréttingu með miklu skápaplássi og ljúflokunum á skúffum, góður búr og tækjaskápur, gert er ráð fyrir ísskáp og nýleg uppþvottavél í innréttingu, rúmgóð eyja sem hægt er að sitja við með span helluborði. Nýlegur ofn í vinnuhæð, flísalagt gólf.
Bílaplanið er hellulagt með stæði fyrir nokkra bíla, snjóbræðslu í hluta.
Staðsetning hússins er frábær, stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, Hörðuvallaskóla, íþróttaaðstöðu HK í Kórnum, Krónuna, Apótek og fleira. Falleg útivistarsvæði eru einnig steinsnar frá og upp í Guðmundurlund, Elliðavatn og Heiðmörkin .
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is