Fasteignasalan TORG kynnir: ENDARAÐHÚS Á EINNI HÆÐ – ÆÐISLEGT STÓRT ELDHÚS – 3 SVEFNHERBERGI – 1 BAÐHERBERGI – GESTASNYRTING – GÓLFHITI - FLÍSAR Á GÓLFUM – AUKIN LOFTHÆÐ - BÍLSKÚR ! Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá johanna@fstorg.is Fjölskylduvænt, vel skipulagt og fallegt 203,6 FM endaraðhús á einni hæð með aukinni lofthæð byggt 2019 í góðu og rólegu hverfi í Leirvogstungu. Húsið skiptist í forstofu, stórt og fjölskylduvænt eldhús, stofur, 3 svefnherbergi og baðherbergi og gestasnyrtingu og innbyggðan bílskúr. Hiti í bílastæði fyrir framan bílskúr. Steyptur veggur meðfram lóðinni en að öðru leiti er garðurinn ófrágenginn. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:Forstofa: Lokað rými en innangengt í eldhús á vinstri hönd en gestasnyrtingu og þaðan inn í bílskúr á hægri hönd.
Eldhús: Mjög stórt með mikilli lofthæð. Hvít háglans U-laga innrétting með efri og neðri skápum og svartri granít borðplötu. Span helluborð og gufugleypir, AEG bakaraofn og stór vaskur. Ísskápur og frystiskápur passa inn í innréttinguna og geta fylgt. Rými fyrir mjög stórt eldhús/borðstofuborð. Innaf eldhúsi er geymslubúr með rennihurð.
Stofa/sjónvarpsstofa: Opin og björt með aukinni lofthæð og útgengi út í suðvestur garð.
Svefnherbergin – Hjónaherbergi er mjög rúmgott með skápum yfir heilan vegg.
Barnaherbergin einnig rúmgóð án skápa. Öll herbergin með aukinni lofthæð.
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf með upphengdu salerni, hvítri háglans innréttingu með vaski, flísalagðri sturtu og baðkari.
Þvottahús með borði, skolvaski og hillum.
Gestasnyrting: Inn af forstofu á vinstri hönd. Flísalagt hólf í gólf með upphengdu salerni og hvítri háglans innréttingu.
Gólfefni: Gólfhiti og flísar á öllum rýmum.
Bílskúr: Flísalagður með sömu flísum og allt húsið, rafdrifinn bílskúrshurðaropnari. Hiti í bílastæði fyrir framan bílskúr. Rafhleðslustöð í bílskúr.
Geymsla: 6 fm geymsla innaf bílskúr með lausum hillum. Flísar á gólfi.
Garður: Steyptur veggur meðfram lóðinni en að öðru leiti er garðurinn ófrágenginn.
Fjölskylduvænt raðhús sem er mjög vel staðsett í Leirvogstungu, snýr niður að Leirvogi. Garðurinn snýr í suð-vestur og er mjög skjólgóður. Stutt út í náttúruna og öll þjónusta í miðbæ Mosfellsbæjar í 3ja-5 mín. akstursfjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs. í síma 837.8889 hjá johanna@fstorg.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.