Miklaborg og Böddi kynna: Glæsileg hárgreiðslustofa til LEIGU við Hallgerðargötu 19
Björt og rúmgóð, 178,8 fm hárgreiðslustofa á jarðhæð. Stofan er vel skipulögð í opnu rými með stórri afgreiðslu og góðu verslunarrými fremst. Mikið gluggarými og vönduð lýsing skapa aðlaðandi umgjörð fyrir starfsfólk og viðskiptavini.
Á stofunni eru 12 rúmgóðar vinnuaðstöður með speglum, þar af níu með klippistólum, ásamt fjórum vönduðum þvottavöskum með nuddi. Gott bil er á milli vinnuaðstaðna og nægt athafnarými.
Húsnæðið er tiltölulega nýparketlagt og búnaður vel með farinn. Góð kaffi- og eldhúsaðstaða, þvottaaðstaða og lageraðstaða eru til staðar, auk aðgangs að sameiginlegu rými.
Nóg er af bílastæðum í bílastæðahúsi undir húsinu, en þaðan er komið upp beint fyrir framan stofuna.
Stofan er nánast tilbúin til opnunar – hér er tækifæri til að fylla hillurnar af vörum, mæta með starfsfólkið og hefja rekstur í glæsilegri aðstöðu.
Nánari upplýsingar veitir Böddi, löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg.
Sími: 821 6300
Netfang: boddi@miklaborg.is
Allar nánari upplýsingar gefur
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
104 | 374,9 | 175 | ||
201 | 181 | Tilboð | ||
108 | 170,7 | 205 | ||
108 | 169,8 | 205 | ||
108 | 167,9 | 195 | ||
101 | 162,8 | 169,8 |