ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu: Grensásvegur 1B, íbúð 04-07Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð, skráð 93,5 fm, þar af geymsla 6,6 fm (fastanr.
251-9725).
Seljendur skoða skipti á ódýrari eign.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veita:Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma
698-6655, tölvupóstur pall@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma
560-5524, tölvupóstur sigurjon@allt.is
Íbúðin er hluti af glæsilegu 41 íbúða fjölbýlishúsi sem hannað er af Archus og Rýma arkitektastofum, þar sem mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang, nútímalega hönnun og gæðaefni. Archus sá jafnframt um innanhúshönnun og efnisval. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Iwa og falleg innfelld LED lýsing er í eldhúsi og loftum.
Skipulag eignarAnddyri/gangur með parketi og góðum fataskáp.
Alrými er opið og bjart með eldhúsi, stofu og borðstofu í samfelldu rými.
Stofa með útgengi á svalir sem snúa til suð-austurs með glerhandriði.
Eldhús er rúmgott með vandaðri innréttingu og eyju. Bosch tæki eru í eldhúsi, þar á meðal spanhelluborð, ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, auk Eico háfs.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Barnaherbergi / svefnherbergi er einnig rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt upp í loft á þremur veggjum með 60x60 flísum, walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfhiti er í allri íbúðinni og innfelld lýsing í loftum.
Sameign & aðstaðaGeymsla í sameign
Hjólaaðstaða með stæðum fyrir allt að 400 reiðhjól
Bílastæði:Ekki eru sérmerkt bílastæði við húsið, en 183 stæði eru í bílakjallara sem hægt er að leigja til lengri eða skemmri tíma eða nota með tímagjaldi. Aðgengi er frá Skeifu. Greiðslur fara fram í gegnum snjallforrit og í kjallaranum verða einnig hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.
StaðsetningEignin er á frábærum stað miðsvæðis í borginni, í nágrenni við Skeifuna og Laugardalinn. Stutt er í fjölbreytta þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu í Glæsibæ, Ármúla og nágrenni. Allir skólastigar eru í göngufæri og útivistarsvæði Laugardalsins með sundlaug, líkamsrækt og fallegum gönguleiðum er rétt hjá.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.