*** SÝNUM SAMDÆGURS EÐA EFTIR SAMKOMULAGI ***
Fasteignasalan Bær kynnir glæsilegar nýjar íbúðir við Arnarhlíð 4, 102 Reykjavík. Byggingaraðili er Dalhús ehf. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, fataskápum, innréttingum og innbyggðum heimilistækjum í eldhúsi. Ljós fylgja öllum íbúðum; um er að ræða kubbaljós, ljósakúpla og innfellda kastara. Baðherbergi íbúða eru flísalögð í hólf og gólf. Gólf þvottahúsa íbúða eru flísalögð.Glæsileg þakíbúð nr. 0501 er 3 herbergja 162,0 fm að stærð. Staðsett á fimmtu og efstu hæð með 91,6 fm þaksvölum og 7,5 fm vestursvölum. Bílskúr 28,1 fm og sér bílastæði merkt B01.
Nánari lýsing:Komið er inn frá sameign í rúmgóða forstofu með fataskáp. Eldhúsinnrétting er hnota frá GKS. Raftæki í eldhúsi eru frá AEG; kæliskápur með frysti, uppþvottavél, spanhelluborð og bakaraofn undir helluborði. Eyjuháfur yfir helluborði. Eldhúsvaskur, stál eða svartur eftir því sem við á, og blöndunartæki í sama lit. Í baðherbergi er upphengt salerni með hæglokandi setu. Innréttingar eru hvítar, skúffur undir handlaug. Kringlóttur spegill með baklýsingu er yfir handlaug. Handklæðaofn og lokaður sturtuklefi. Veggir með ljósum flísum. Þvottahús er með stálvaski og fráleggsborði. Hvítir PAX fataskápar eru í forstofu og svefnherbergjum. Gólefni íbúðar eru ljóst harðparket, en gegnheilar flísar á votrýmum. Hurðir og karmar eru annað hvort harðplasteikarhurðir eða hvítar, sólbekkir eru þar sem við á, hvítir og plastlagðir. Eigninni fylgir sér geymsla í kjallara. Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Í bílastæðahúsi er uppsett grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. Ljósleiðari er dreginn í tengikassa hverrar íbúðar.
Nánari lýsing hússins:Arnarhlíð 4 er 5 hæða lyftuhús með 9 íbúðum, auk kjallara með sérgeymslum og bílastæðum og bílskúrum þar sem við á. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt. Innangengt er úr bílageymslu inn í stigagang. Á jarðhæð er aðalinngangur hússins, póstkassar og mynddyrasímar eru í anddyri. Úr anddyri er gengið inn í stigahús að lyftu ásamt sérgeymslum íbúða. Húsið afhendist fullbúið að utan, ásamt lóð og bílastæði. Þak er steinsteypt með ásoðnum tjörupappa og einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate), pallar og gras er á þakgörðum en grjót á öðrum svæðum. Svalir eru staðsteyptar, svalahandrið úr álprófílum og gleri og svalagólf með viðarstiklum. Húsið er fulleinangrað að utan og klætt með álklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr timbri, málaðir að innan en áklæddir að utan. Bílastæði eru malbikuð og hitalögn er í gagnstéttum. Sorpgeymslur eru djúpgámar, niðurfelldar í gangstéttar.
hlidarendi.isNánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson í síma 699 4994 eða á netfangið pall@fasteignasalan.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð