Hraunhamar kynnir: Glæsilegt geymsluhúsnæði/atvinnuhúsnæði ENDABIL 65 fm + ca 30 fm milliloft (ósamþykkt) á besta stað við Borgahellu 3 Hfj. Engin vsk kvöð.
Góð lofthæð og há innk.hurð, að auki er gönguhurð og stór gluggi. Stór sameiginleg lóð, eitt hús á lóðinni. Góð aðkoma og frábær staðsetning til framtíðar. Tilvalin eign fyrir hobbyaðila eða smáverktakann.
Engin vsk kvöð. (skráð sem geymsla) Mikil lofthæð 5-6,4 metrar samkv. teikn.Um er að ræða 65 fm geymsluhúsnæði að Borgahellu 3. Húsið allt skiptist í 14 eignar-/leigurými.
Inntaksrými er í suður enda hússins og er sameiginlegt. Byggingin er á einni hæð. Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.
Einingar hafa aðgang að sameiginlegum sorpgám á lóð. Lóðin er malbikuð með nægum bílastæðum.
Uppbygging húss: Húsið er byggt ofan á steypta sökkla með hefðbundinni staðsteyptri plötu.
Útveggir: Burðargrind hússins er úr límtré, klædd með PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Veggeiningar eru 80mm á þykkt með microrib áferð. Litur RAL 7016. Málningarhúð á veggeiningum er 55 míkron á þykkt og valin sérstaklega til að verjast betur gegn UV-geislun (upplitun) og veðrun.
Hurðir: Innkeyrsluhurðir frá Hörmann, litur RAL 7016 með samlitum álgluggum. Stærð hurða 380x360. Húsið skilast með vönduðum álgluggum og hurðum frá REYNEARS. Litur RAL 7016. Ein gönguhurð er með skygni/skjólvegg.
Þak: Þak er byggt upp með 100mm þykkum PIR Quad Core samlokueiningum frá Kingspan. Málningarhúð 200 míkron. Litur RAL 7016.
Innveggir og loft: Innveggir eru gerðir úr OSB krossvið/spónarplötum í innralagi klætt með gifsi, með steinullareinangrun á milli. Tilbúnir til spörslunar og málningu.
Gólf: Gólf eru járnbent, staðsteypt og vélslípuð.
Hitun: Hitun húsnæðisins er með gólfhita.
Raflögn: Rafmagn (utanáliggjandi) fullfrágengið skv. teikningum og skilast með góðum iðnaðarlömpum í lofti og kastara fyrir ofan iðnaðarhurð úti.
Sorpgeymsla: Sorpgámur er staðsettur á lóð.
Lóð: Lóð er fullfrágengin með góðu malbikuðu bílaplani, sjá afstöðumynd.
Brunavarnir: Brunavarnir eru samkvæmt reglugerð.
Salerni: Frárennslislagnir eru til staðar fyrir möguleika á salerni
Ræsting: Ræstivaskur er í hverri einingu skv. Teikningum
Allar nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölsutj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is og
Freyja M Sigurðard. lgf. s. 862-4800 freyja@hraunhamar.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.