Andri Freyr Halldórsson & Kristján Þórir Hauksson ásamt LIND fasteignasala kynna til sölu:
Virkilega bjarta og fallega 3. herbergja 63.2 fm íbúð. Eignin er við Njörvasund 21 í fjölskylduvænu og vinsælu hverfi Reykjavík.
Íbúðin er á jarðhæð/kjallara í fjölbýlishúsi byggðu árið 1960 í fallegu þríbýli.
Skráð stærð eignar skv. FMR er 63.2 fm.
*Frábær fyrstu kaup!
*Fallegur afgirtur garður!
*Tengingar fyrir heitan pott.
*Mikið endurnýjuð eign.
*Gólfhiti með Smarthome stýringum.
*Nýleg rafmagnstafla í sameign 2022.
*Rafmagn endurnýjað í íbúð 2023.
*Frárennslislagnir endurnýjaðar út að lóðamörkum.
*Vatnslagnir endurnýjaðar 2023.
Nánari lýsing eignar:
Inngangur: nýlegt teppi og flísar á gólfum.
Forstofa/miðrými: Fallegt miðrými tekur við þér þegar komið er inn í íbúðina.
Eldhús: með parketflísum á gólfi og mosaic flísum á milli skápa. Nýleg innrétting, stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: björt og rúmgóð með parketflísum á gólfum. -Gengið út í fallegan afgirtan garð sem býður upp á mikla möguleika. -Tengingar fyrir heitum potti.
Hjónaherbergi: með parketflísum á gólfi & fínum fataskáp.
Svefnherbergi 1: er með parketflísum á gólfum & fínum fataskápum.
Baðherbergi: flísar á gólfi og hluta veggja, nýleg innrétting, upphent salerni, og walk-in sturta.
Þvottvél/þurkarri: hefur verið komið snyrtilega fyrir við eldhúsi.
Gólfhiti er í íbúðinni með Smart home stýringum.
Eignin var endurnýjuð að mjög miklu leyti árið 2023, m.a. endurnýjaðar frárennslislagnir út að lóðamörkum, einnig vatnslagnir innan eignar, rafmagn innan eignar, lagður var gólfhiti í íbúðina.
Gólfefni endurnýjuð með parketflísum nema flísar á endurnýjuðu baðherbergi og skápar í öllum rýmum. Rafmagnstöflu skipt út 2022.
Þak viðgert fyrir c.a. 20 árum. Strompur fjarlægður og sett nýtt aluzink járn á þak.
Njörvasund 21 er á eftirsóttum stað í hinu vinsæla póstnúmeri 104 Reykjavík. Í næsta nágrenni eru fallegar göngu- og hjólaleiðir ásamt grónum útivistarsvæðum sem skapa rólegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði, verslanir og fjölbreytta afþreyingu. Einnig er góð tenging við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur, sem gerir staðsetninguna afar hentuga fyrir bæði fjölskyldur og einstaklinga.
Nánari upplýsingar veita:
Andri Freyr Halldórsson lögg. fasteignasali / 762-6162 / ANDRI@FASTLIND.IS
Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali / 6961122 / KRISTJAN@FASTLIND.IS
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.