Miðvikudagur 30. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2025
Deila eign
Deila

Kiðjaberg 131

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
164.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
147.500.000 kr.
Fermetraverð
894.482 kr./m2
Fasteignamat
75.750.000 kr.
Brunabótamat
89.650.000 kr.
Mynd af Hrannar Jónsson
Hrannar Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2016
Þvottahús
Geymsla 41m2
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2345528
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt frá 2016
Raflagnir
Upprunalegt frá 2016
Frárennslislagnir
Upprunalegt frá 2016
Gluggar / Gler
Upprunalegt frá 2016
Þak
Upprunalegt frá 2016
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
8 - Í notkun
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Húsið er í dag skráð á B2- Fokheld bygging, matsstig 8 - Tekið í notkun, búið er að uppfæra teikningar þar sem eldhúsi var breytt, verið að uppfæra rafmagnsteikningar og húsinu verður skilað með lokaúttekt frá byggingarfulltrúa og uppfærsla allrar skráningar komið í rétt ferli fyrir nýjan eiganda.
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala, í samstarfi við Dexter Legal & Holding, kynna:

Einstaklega vel staðsett og vandað heilsárshús með fallegu útsýni rétt við 6.braut á Kiðjabergsvelli í Grímsnesi.

Húsið stendur á 5350 fm eignarlóð, hitaveita með gólfhita bæði í húsi, stétt milli húsa og í geymslu/gestahúsi/bílskúr.

Eignin samanstendur af 3-4 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, gestasnyrtingu, þvottahúsi, stóru alrými opnu milli eldhús/borðstofu/stofu, sólskála (ekki inni í fm tölu), stórum bílstæðum, miklu útisvæði á þrjá vegu við húsið (austur/suður/vestur), mikið útsýni og heitur pottur.

Húsið var byggt 2016, stendur á steyptum grunni með steyptri plötu og gólfhita. Um er að ræða einingahús frá UAB Quercus Juvantais í Lithaen og er umboðsaðili þeirra húsa á Íslandi Kverkus. Húsið er klætt að utan með alocink klæðningu og harðvið.

Gólfsíður gluggar eru í hluta af alrými, sólstofa í austurenda er um 12 fm (óskráð), útirými milli húsa er um 60 fm með gólfhita (hægt að loka því og stækka húsið með veggjum og þaki) og eru allar verandir við húsið með steyptum gólfum. 

Eigendur húsa á svæðinu hafa forgang í að gerast meðlimir í golfklúbbi Kiðjabergs, gkb.is

Þriggja-fasa rafmagn er til staðar.

Nánari lýsing - Útisvæði og geymsla/gestahús/bílskúr:
Bílastæði - keyrt er upp að húsinu og inn á mjög stórt bílastæði með möl, sem er afmarkað með hárri hljóðmön sem veitir bæði næði og skjól fyrir norðanvindum.
Útisvæði milli húsa - gengið er inn um hurð á norðurvegg sem rammar inn mjög skjólgott svæði milli húsanna. Þar er hægt að loka með þaki og öðrum vegg til að stækka húsið síðar, kjósi kaupendur það, en í dag er þetta nýtt sem einstaklega skjólgott útisvæði og er hiti í steyptu gólfi á þessu útisvæði.
Geymsla/gestahús/bílskúr (41 fm) - er vestan við húsið og útisvæðið, rúmgott baðherbergi með sturtu, stórt svefnherbergi og góð geymsla/bílskúr með rafdrifinni hurð.
Útisvæði - steypt verönd er frá austurhlið húss, meðfram allri suðurhliðinni og inn á milli húsanna. Á suðvesturhorni framhliðar er stúkað af skjólgott rými fyrir heitan pott og setusvæði með stórum útsýnisgluggum úr öryggisgleri og miklu útsýni til vesturs, suðurs og norðus, Ingólfsfjallið blasir við ásamt mikilli víðsýni á fallega náttúruna.

Nánari lýsing - Aðalhús:
Forstofa - komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum náttúruflísum á gólfi og góðum skóskápum.
Gestasnyrting/Þvottahús - Inn af forstofu er gestasnyrting með upphengdu salerni, góðri skápaeiningu með vaski og spegli. Innaf því er gengið inn í rúmgott þvottahús með góðum skápum, þvotavél og þurrkara í vinnuhæð, náttúruflísar á gólfi. 
Svefnhergergi (8 fm) - er rúmgott með tvöföldu rúmi, góðum glugga og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi/sjónvarpshol (9,5 fm) - er rúmgott, góður gluggi, harðparket á gólfi og nýtt í dag sem sjónvarpsrými með sófa o.þ.h.
Hjónaherbergi (14,5 fm) - mjög rúmgott, góður gluggi og harðparket á gólfi.
Baðherbergi (7,2 fm) - er innaf hjónaherberginu, upphengt salerni, góð innrétting með vaski og spegli, "Walk-in" sturta og flísum á gólfi og veggjum.
Eldhús (12,9 fm) - er í suðvesturhorni hússins með fallegu útsýni til suðurs. Rúmgóð innrétting á gagnstæðum veggjum með miklu geymslurými, eyja í miðjunni með skápum, mikið vinnurými, pláss fyrir einfaldan ísskáp, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð, helluborð í eyju og morgunverðarsetusvæði með barstólum, harðparket á gólfi.
Borðstofa/stofa (41,3 fm) - er í beinu framhaldi og opið við eldhúsið, austur eftir alrýminu. Mjög rúmgott svæði með stóru matarborði og góðu setusvæði í stofu. Útsýni úr gluggum til suðurs og vesturs er einstaklega fallegt og rammar inn Ingólfsfjallið á fallegan hátt úr nokkrum sjónarhornum, harðparket á gólfi.

Austast úr stofunni er svo gengið út í fallegan glerskála sem bætt var við (óupphitaður og óskráður).

Sumarhúsafélag eigenda er á svæðinu og er mikil þjónusta iðkuð í kringum golfklúbb og golfskála, þar sem njóta má veitinga.

Hér er um einstaklega glæsilega eign að ræða sem hentar bæði golf- og náttúrufólki og rúmar stórar fjölskyldur. Stutt er í marga áhugaveðra staði og þjónustu, Selfoss er um 15 min akstursfjarlægð, klukkutími frá Reykavk, 35 min frá Flúðum, svo fátt eitt sé nefnt.

Nánar um rekstur hússins er hægt að nálgast hjá fasteignasala.

Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is


Athugasemdir við söluyfirlit frá fasteignasala:
Allar tölur stærðir í söluyfirliti fyrir herbergi eru teknar upp úr teikninigum hússins og endurspegla ekki endilega birtar og skráðar endanlega stærðir, sem og að birt er í söluyfirlit áæltuð stærð austurglerskála 12 fm, sem er eingöngu til upplýsingar fyrir kaupendur og styðjast skal við fasteignayfirlit og skráningu eignar varðandi stærð hennar.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.




 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2016
41 m2
Fasteignanúmer
2345528
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
19.400.000 kr.
Matsstig
8 - Í notkun

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórsstígur 27
Skoða eignina Þórsstígur 27
Þórsstígur 27
805 Selfoss
183.6 m2
Sumarhús
534
784 þ.kr./m2
143.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergahraun
Bílskúr
Skoða eignina Dvergahraun
Dvergahraun
805 Selfoss
221.1 m2
Sumarhús
724
678 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Eystri-Hellur
Bílskúr
Skoða eignina Eystri-Hellur
Eystri-hellur
803 Selfoss
159.6 m2
Jörð/Lóð
524
939 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Urðarholt
Bílskúr
Skoða eignina Urðarholt
Urðarholt
804 Selfoss
220 m2
Jörð/Lóð
514
673 þ.kr./m2
148.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin