Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Raðhúsið Áshamar 3F í Vestmannaeyjum sem er einkar björt, falleg og vel skipulögð 4 herbergja eign í vesturbænum. Eignin er byggð úr steypu árið 1988 og er 125,4 fm2, þar af er bílskúr 32 fm2 byggður árið 2003 með afmörkuðu þvottahúsi/baðherbergi.
Eignin hefur nánast öll verið tekin í gegn að innan, má þar nefna eldhús, baðherbergi, gólfefni, innihurðar. Falleg og snyrtileg eign á frábærum stað í rólegum botnlanga nálægt gólfvellinum og Hamarsskóla.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105
Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi, fatahengi
Þvottahús: Flísar á gólfi, opnanlegur gluggi
Eldhús: Parket á gólfi, nýleg hvít Ikea innrétting, ný tæki
Stofa: parket á gólfi, útgengt í garð
Baðherbergi: flísar í hólf og gólf upphengt wc, góð innrétting, sturta, opnanlegur gluggi
Herbergi 1: parket á gólfi, skápur
Herbergi 2: parket á gólfi, skápur
Herbergi 3: parket á gólfi
Bílskúr: Steypt gólf, búið að stúka af baðherbergi/þvottahús inn af bílskúr, byggður 2003 og er 32 fm2.
Steyptur pallur og garður: Afgirtur garður með einstöku útsýni yfir smáeyjarnar, dalinn og golfvöllinn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.