SÓLBAKKI 2 - NÝJAR ÍBÚÐIR - HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI FYRIR FYRSTU KAUPENDUR
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu SÓLBAKKI 2C ÍBÚÐ 103, Neskaupstað. Ný þriggja herbergja íbúð á NEÐRI HÆÐ. Smellið hér fyrir staðsetningu.
TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
ÍBÚÐ 103 NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er 78,0 m², þar af geymsla 3,6 m² samkvæmt skráningu HMS. Sér inngangur inn í íbúðina.
Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, geymsla.
EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU.
Upplýsingar um hlutdeildarlán má sjá HÉR
BYR fasteignasala | byr@byrfasteignasala.is | s 483-5800Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi. Útgengt er frá stofu á steypta verönd.
Eldhús með Brúnás innréttingu, eyja. Helluborð á eyju, ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu, framhlið fylgir með. Ísskápsop er 186 cm á hæð.
Ofan við eyju er tenging fyrir háf og ljós (fylgir ekki).
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vaskinnrétting og speglaskápur, standandi salerni. Veggir sturtuhorns baðherbergis er flísalagt.
Þvottahús er inn af baðherbergi, pláss fyrir tvær vélar í innréttingu og vaskinnrétting.
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á neðri hæð hússins.
Innréttingar eru frá Brúnas innréttingum með eikaráferð og hvítum efri skápum í eldhúsi.
Íbúðin er kynnt með rafmagnsofnum. Í forstofu og baðherbergi er rafmagnsgólfhiti. Þessari íbúð er skilað með parekti á alrými og herbergjum. Flísar eru á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi.
Veggir íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit.
Hljóðdúkur í loftum íbúðar.Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja íbúðinni.
Sólbakki 2 er 11 íbúða tvílyft hús. Útveggir eru forsteyptir. Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er hefðbundið uppstólað risþak, með báruklæðningu. Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri.
Gangstétt er hellulögð, gróðurbeð grófjöfnuð án gróðurs, aðrir hlutar lóðar eru þökulagðir. Stétt við inngang að íbúðum á neðri hæð er steypt. Lóðin er sameiginleg 1541,6 m² leigulóð í eigu Fjarðarbyggðar.
SÓLBAKKI 2E ÍBÚÐ 101 - stærð 80,6 m² - SELD
SÓLBAKKI 2D ÍBÚÐ 102 - stærð 78,0 m²
SÓLBAKKI 2C ÍBÚÐ 103 - stærð 78,0 m² SÓLBAKKI 2B ÍBÚÐ 104 - stærð 78,0 m² - SELD
SÓLBAKKI 2A ÍBÚÐ 105 - stærð 80,6 m² - SELD
SÓLBAKKI 2F ÍBÚÐ 201 - stærð 80,8 m² - SELD með fyrirvara
SÓLBAKKI 2F ÍBÚÐ 202 - stærð 78,0 m² SÓLBAKKI 2F ÍBÚÐ 203 - stærð 78,0 m² - SELD
SÓLBAKKI 2F ÍBÚÐ 204 - stærð 78,0 m²
SÓLBAKKI 2F ÍBÚÐ 205 - stærð 78,0 m² SÓLBAKKI 2F ÍBÚÐ 206 - stærð 80,8 m² - SELD
Húsfélag hefur verið stofnað.
Um er að ræða eign í byggingu og brunabótamat liggur ekki fyrir, kemur það í hlut kaupanda að greiða skipulagsgjald 0,3% þegar þess verður krafist af HMS.
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.