EIGNAVER 460-6060
Ráðhústorg 1 íbúð 0301 Akureyri.
Mikið endurnýjuð, björt og falleg íbúð á þriðju hæð að Ráðhústorgi 1 í miðbæ Akureyrar. Íbúðin er samtals 127,0 fm.
Ath: Íbúðin er með rekstrarleyfi til skammtímaleigu. Selst með öllu innbúi og klár í útleigu.Nánari lýsing:Forstofa, flísar og fataskápur.
Hol/gangur, flísar og parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, parket á gólfum herbergja, stórt hjónaherbergi og þar er farið út á suðursvalir.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting og sturta. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi. Þvottavél og þurrkari fylgja með.
Eldhús, mjög góð innrétting er í eldhúsi. Góð eyja. Fallegt útsýni yfir Ráðhústorgið. Öll helstu eldhústæki fylgja með, svo sem nýlegur örbylgjuofn, ísskápur o.fl. Hnífapör, glös og önnur áhöld fylgja með.
Stofa rúmgóð og björt stofa, nýlegt parket á gólfi. Nýlegt 75 tommu sjónvarp fylgir með.
Geymsla er inn í búð, parket á gólfi, hillur.
Annað:- Ein besta staðsetning á Akureyri
- Frábært útsýni yfir Ráðhústorg og iðandi mannlífið.
- Falleg eign í miðbæ Akureyrar.
- Mjög góð nýting yfir árið. „Guest favorite“ einkunn á Airbnb sem tryggir íbúðinni meiri sýnileika.
- Núverandi uppsetning kallar á litla sem enga vinnu eiganda.
- Bókanir og þrif eru í sjálfvirku kerfi og gengur mjög vel.
- Seljandi aðstoðar kaupanda að koma upp sambærilegu kerfi.
- Frábær eign fyrir þá sem langar í fasteign á Akureyri sem rekur sig sjálf
- Sjá
www.radhustorgid.is Húseignin er í
einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is