Nýtt á skrá! Opið hús - Mardalur 1A Reykjanesbæ - Bókið skoðun í tara@fastlind.is / 847-8584
Lind fasteignasala kynnir virkilega glæsilegt 3-4ra herbergja endaraðhús á einni hæð á fjölskylduvænum stað við Mardal 1A í Reykjanesbæ. Húsið er alls 87,3 fermetrar að stærð og með aukinni lofthæð yfir flestum rýmum hússins. Útgengi úr stofu á stóra verönd til suðurs. Gólfhiti er í öllu húsinu og geymsla inn af húsinu sem er hægt að nýta sem þriðja svefnherbergi (með glugga).
Húsið skiptist í 2-3 svefnherbergi (ef geymslan er nýtt sem barnaherbergi), opið alrými sem skiptist í eldhús, borðstofu og stofu, baðherbergi. Góð þvottaaðstaða inn af baðherbergi. Rúmgott geymsluloft er yfir geymslu/auaherbergi með fellistiga.
Húsið er byggt árið 2020. Fallegar innréttingar og tæki eru í húsinu. Gott steypt plan er fyrir framan hús með snjóbræðslu. Lagt er fyrir heitum poitti í bakgarði (verönd) og rafhleðslustöð er staðsett við bílaplan.
Frábært staðsetning og einungis um 500 metrar að Stapaskóla þar sem nýtt íþróttahús og sundlaug verður tekið í notkun á næstunni. Fjarlægð frá Reykjavík er einungis um 20 mín og 10 mín að Keflavíkurflugvelli.
Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi, skápum og innfelldri lýsingu í lofti.
Stofa: Rúmar vel setustofu og borðstofu. Harðparket á gólfi og mikil lofthæð. Gluggar til suðurs og innfelld lýsing í loftum. Útgengi á verönd.
Verönd: Er rúmgóð og afgirt til suðurs.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með góðum tækjaskáp og stórri eyju. Mikil lofthæð og innfelld lýsing í loftum. Electrolux bakaraofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél.
Baðherbergi: Er virkilega fallegt með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Mikið skápapláss og upphækkun undir þvottavél og þurrkara. Flísalögð sturta með glerþili og gluggi til norðurs. Falleg innrétting við vask, handklæðaofn og upphengt salerni. Spegill með baklýsingu fyrir ofan vask.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Geymsla/svefnherbergi III: Með harðparketi og glugga til austurs.
Geymsluloft: Er staðsett fyrir ofan geymslu/svefnherbergi III. Fellistigi og gott geymslupláss.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.