LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu töluvert endurbætta 3ja herbergja íbúð á 3. hæð við Hallveigarstígur 9 miðsvæðis í Reykjavík.
Birt stærð eignar er 63.1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er 4 fm geymsla á jarðhæð en henni fylgir hlutdeild í sameign, sameignlegu þvottahúsi og geymslurými í risi.
Eignin skiptist í opið forrými eða hol, eldhús, stofu og borðstofa, tvö svefnherbergi, sturtuherbergi og salerni.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, plankaparket á gólfi.
Eldhús með
nýlegri innréttingu og innbyggðri uppþvottavél sem fylgir, plankaparket á gólfi.
Stofa og borðstofa, plankaparket á gólfi.
Svefnherbergi I með fataskáp og plankaparket á gólfi (innaf stofu og mætti opna á milli).
Svefnherbergi II með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi I - snyrting með upphengdu salerni með handlaug, flísalagt að hluta.
Baðherbergi II - baðaðstaða með flísalagðri sturtu.
Geymsla á jarðhæð (4 fm), önnur geymsla í risi sem er ekki inni í skráðum fermetrum hjá HMS.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð þar sem hver og einn er með sína vél.
Húsgjöld eignar eru 16.363 kr. á mánuði og þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélags, hiti í sameign, rafmagn í sameign og framkvæmdasjóður.
Húsið var
nýlega málað og múrviðgert, gluggar endurnýjaðir (gluggar og gler), rafmagnstafla endurnýjuð ásamt rafmagni að mestu og hitaveitu- / neysluvatnslagnir í íbúð, nýlegir ofnar í íbúðinni og nýlegt mynddyrasímakerfi í húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.