Miðvikudagur 2. september
Fasteignaleitin
Skráð 2. sept. 2026

Mávabraut 7

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
69.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
43.900.000 kr.
Fermetraverð
629.842 kr./m2
Fasteignamat
40.250.000 kr.
Brunabótamat
38.200.000 kr.
JM
Júlíus M Steinþórsson
Byggt 1976
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2089928
Landnúmer
127806
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Gluggar / Gler
nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sólpallur / sérafnotaflötur
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
eignasala.is kynnir eignina Mávabraut 7, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 208-9928 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Mávabraut 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-9928, birt stærð 69.7 fm.

Um er að ræða 69,7 m² íbúð á jarðhæð með sérinngangi og góðum, afgirtum sólpalli til sérafnota. Sérinngangurinn og útisvæðið veita eigninni aukið næði og yfirbragð sérbýlis. Gengið er beint úr stofunni út á sólpallinn sem myndar notalega viðbót við íbúðina og býður upp á góða möguleika til útiveru.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar á íbúðinni og húsinu í gegnum tíðina. Eignin er almennt snyrtileg en að einhverju leyti farin að bera merki eðlilegrar notkunar; meðal annars er parket farið að láta á sjá á köflum.

Nánari lýsing
Forstofa:
Gengið er inn um sérinngang í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús:
Eldhúsið er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu. Þar eru meðal annars bakarofn og örbylgjuofn. Eldhúsið var endurnýjað árið 2019 samkvæmt upplýsingum eiganda.
Þvottahús:
Þvottahúsið er inn af eldhúsi. Þar er gluggi og innrétting með góðu vinnu- og geymsluplássi.
Stofa:
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Úr stofunni er gengið beint út á afgirtan sólpall til sérafnota. Parketið er farið að láta á sjá á köflum.
Sólpallur og sérafnotaflötur:
Við íbúðina er góður, afgirtur sólpallur og útisvæði til sérafnota. Svæðið veitir gott næði og býður upp á skemmtilega möguleika fyrir útihúsgögn, grill og almenna útiveru. Sólpallurinn er góð framlenging á stofunni yfir hlýrri mánuði ársins.
Baðherbergi:
Baðherbergið er flísalagt og með baðkari, innréttingu með efri og neðri skápum, handklæðaofni og upphengdu salerni. Baðherbergið var endurnýjað árið 2010 samkvæmt upplýsingum eiganda.
Svefnherbergi:
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og með fataskápum. Parket er á gólfum og er það farið að bera merki notkunar.
Endurbætur á íbúðinni
Samkvæmt upplýsingum eiganda hafa meðal annars eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar:Neysluvatnslagnir endurnýjaðar árið 2007.
Baðherbergi endurnýjað árið 2010. Rafmagnstafla yfirfarin árið 2011 og endurnýjuð eftir þörfum, meðal annars skipt um öryggi og lekaliða. Eldhús endurnýjað árið 2019. Flestir gluggar íbúðarinnar endurnýjaðir árið 2021. Ofnar endurnýjaðir á árunum 2021–2025.
Framkvæmdir á húsinu og sameign
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa meðal annars eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar á húsinu: Þakjárn endurnýjað ásamt lofttúðum. Ruslageymsla reist á lóðinni. Bílastæði lagfært. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Port málað og múrviðgert. Stigagangur flísalagður, teppi endurnýjað og nýir póstkassar settir upp. Gluggar á suðurhlið hússins endurnýjaðir að hluta.
Staðsetning
Eignin er vel staðsett í grónu hverfi í Reykjanesbæ. Stutt er í skóla, leikskóla, matvöruverslanir, íþróttasvæði, heilsugæslu og aðra helstu þjónustu.
ATH stór hluti af  innbúi getur fylgt með, seljandi er að flytja erlendis,. 
Nánari upplýsingar á skrifstofu  Hafnargötu 90a ísíma 4206070 eða , tölvupóstur julli@eignasala.is og  joi@eignasala.is  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/06/202434.250.000 kr.42.000.000 kr.69.7 m2602.582 kr.
20/06/202434.250.000 kr.42.000.000 kr.69.7 m2602.582 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sementsbraut 15 íbúð 105
Efsta hæð
Sementsbraut 15 íbúð 105
300 Akranes
85 m2
Fjölbýlishús
211
835 þ.kr./m2
70.975.000 kr.
Skoða eignina Sementsbraut 15 íbúð 104
Efsta hæð
Sementsbraut 15 íbúð 104
300 Akranes
59.5 m2
Fjölbýlishús
211
860 þ.kr./m2
51.170.000 kr.
Skoða eignina Sementsbraut 15 íbúð 103
Efsta hæð
Sementsbraut 15 íbúð 103
300 Akranes
71.5 m2
Fjölbýlishús
211
835 þ.kr./m2
59.702.500 kr.
Skoða eignina Sementsbraut 15 íbúð 102
Efsta hæð
Sementsbraut 15 íbúð 102
300 Akranes
71.4 m2
Fjölbýlishús
211
793 þ.kr./m2
56.619.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin