Fimmtudagur 19. september
Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2024
Deila eign
Deila

Grensásvegur 1D

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
88.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
76.900.000 kr.
Fermetraverð
871.882 kr./m2
Fasteignamat
65.750.000 kr.
Brunabótamat
51.100.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2514315
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Nýbygging
Raflagnir
Nýbygging
Frárennslislagnir
Nýbygging
Gluggar / Gler
Nýbygging
Þak
Nýbygging
Svalir
Já - Suðursvalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags dagsett 25.05.2023, varðandi yfirstandandi framkvæmdir.
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: 

Vel skipulögð 88,2 fm. tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð með suður-svölum í nýlegu lyftufjölbýli við Grensásveg 1D, 108 Reykjavík.

Aukin lofthæð, gólfhiti, parket og flísar á gólfi, gólfsíðir gluggar og vandaðar innréttingar. Innfelld LED lýsing í eldhúsinnréttingu og í niðurteknum loftum. Bosch tæki í eldhúsinnréttingu. þ.e. spanhelluborð, bökunarofn.  Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf frá Eico. Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe. Baðherbergi er flísalagt með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Svalahandrið úr gleri.  

Bókið skoðun hjá gulla í síma 6616056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Smelltu á link til að skoða íbúð í 3-D

Nánari lýsing: Íbúð 305,  er tveggja herbergja 88,2 fm. endaíbúð með suðursvölum. Komið er inn í anddyri/forstofuhol með fataskápum með aðgengi inn í opið og bjart alrými sem er eldhús, stofa og borðstofa.  Útgengt er út á stórar svalir frá borðstofu. Eldhúsinnrétting er með gott skápa- og vinnupláss. Eyja í eldhúsi er með gott borðpláss til að sitja og vinna við. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með fataskápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vönduð baðinnrétting með handlaug og skúffum auk innréttingu utan um aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Sturta með glerskilrúm, upphent salerni og handklæðaofn. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 00-31.

Bílakjallari/bílastæði: Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara verða settar upp nokkrar hraðhleðslustöðvar fyrir rafknúnar bifreiðar.

Deilibílar verða hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og atvinnustarfsemi á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur verða forskráðir.

Góð staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Grensásvegur 1, D/E: Húsið er 50 íbúða lyftu-fjölbýli, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Tveir stigagangar og tvö lyftuhús og hjólageymsla.  

Allar nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli í sima 661-6056 eða gulli@remax.is, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-









 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/03/202362.150.000 kr.67.000.000 kr.88.2 m2759.637 kr.
12/05/20225.670.000 kr.63.900.000 kr.88.2 m2724.489 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1F - 0502
Grensásvegur 1F - 0502
108 Reykjavík
82.1 m2
Fjölbýlishús
211
977 þ.kr./m2
80.200.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1F - 0405
Grensásvegur 1F - 0405
108 Reykjavík
83.5 m2
Fjölbýlishús
211
959 þ.kr./m2
80.100.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A - 0609
Grensásvegur 1A - 0609
108 Reykjavík
76.1 m2
Fjölbýlishús
211
997 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Grensásvegur 1A - 0608
Grensásvegur 1A - 0608
108 Reykjavík
78.7 m2
Fjölbýlishús
211
958 þ.kr./m2
75.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin