Pálsson Fasteignasala kynnir:
Fallegt og vandað parhús á tveimur hæðum byggt úr CLT límtréseiningum og klætt með lerki. Gluggar og hurðir eru timbur/ál. Húsið er með 3 svefnherbergjum, opinni stofu með borðstofu og eldhúsi, 2 baðherbergjum, gestasalerni og bílskúr á Akranesi.
- Hjónaherbergi með sér fata-og baðherbergi. Útgengt á svalir sem snúa til suðurs
- Pallur með yfir byggðu útieldhúsi og heitum potti.
- Fullbúinn bílskúr með kjallara og epoxy á gólfum. Hleðslustöð er fyrir rafbíl.Birt stærð samkv. HMS er 199,3 m2. Kjallari í bílskúr er ekki inni í fermetra tölu þar sem hann er skráður sem fylgirými. Lofthæð í kjallara er 2 metrar.
Dökkbæsað eikarparket lagt í fiskibeinamynstri á gólfum, auk flísa og epoxy. Hljóðdúkur er í öllum loftum með innfelldri lýsingu. Vola blöndunartæki eru í öllum votrýmum nema þvottahúsi og bílskúr. Loftskiptikerfi er í húsinu.
Innanhúss- og lýsingarhönnun: Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnar Innanhúss arkitektar.
Innkeyrsla er steypt með snjóbræðslu.
Vönduð og hugguleg eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnar Már Ragnarsson astmf. S:852-7575 eða ragnar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.iswww.eignavakt.is www.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing:
Jarðhæð:Anddyri: er parketlagt og með góðum fataskápum. Stigi upp á efri hæð er í anddyri. Mikil lofthæð.
Stofa, borðstofa og eldhús: mynda eitt opið rými með parket á gólfi.
Eldhús: er með vandaðri innréttingu frá Parka með Bianco Carrara marmararborðplötum frá Rein steinsmiðju. Eyja með spanhelluborði. Háir skápar sem ná upp í loft. Búrskápur, bakarofn, innbyggður ísskápur og frystiskápur, báðir í fullri hæð.
Pallur: er 70 m2 þar sem er útieldhús sem eru undir glerþaki, einnig er heitur pottur. Búið er að leggja fyrir útisturtu. Plastfjalir eru á gólfi.
Gestasalerni: er með salerni og vaski. Innbyggður skápur og flísar á gólfi.
Þvottahús: er með góðri innréttingu og flísum á gólfi. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Flísar á gólfum. Innangengt er úr þvottahúsinu í bílskúrinn
Bílskúr: er fullfrágenginn með epoxy á gólfum. Einnig er 32m kjallari undir bílskúrnum sem nær einnig undir þvottahús. Kjallari er ekki inni í fermetratölu hússins þar sem að hann telst sem fylgirými.
2. hæðHjónasvíta: er parketlögð með
fataherbergi og
baðherbergi. Á baðherbergi er baðinnrétting, upphengt salerni og "walk-inn sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Útgengt er á svalir sem snúa í suður.
Sjónvarpshol / herbergi. Rýmið er rúmgott og pláss fyrir stóran og kósí sófa
Svefnherbergi 1 : Er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 : Er með parketi á gólfi og litlu fataherbergi.
Baðherbergi: Er með baðkari með sturtu, innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni og góðri innréttingu.
Eignin er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi nálægt grunn- og leikskóla.
Akranes er einstaklega barnvænn og fjölskylduvænn bær þar sem stutt er í náttúruna og góða þjónustu. Akranes er í mikilli uppbyggingu og hentar vel fyrir fjölskyldufólk sem vill sameina góða þjónustu, öryggi og næði.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.