Eignamiðlun kynnir:
Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 2. hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þurrkherbergi, hjóla- og vagnageymslu.
***Smelltu hér til að sækja söluyfirlit***Nánari lýsing:Gengið er inn í forstofu. Hún er parketlögð. Fataskápur sem nær upp í loft.
Björt og rúmgóð stofa með fallegu útsýni til suðvesturs. Parketlögð. Stofan rúmar vel bæði borðstofu og setustofu.
Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Borðkrókur. Parketlagt. Útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergið er bjart og rúmgott. Tveir tvöfaldir fataskápar sem ná upp í loft. Parketlagt.
Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og hluta veggja. Hvít innrétting undir handlaug. Speglaskápur. Baðkar með sturtu.
Sérgeymsla: Á jarðhæð. Stærð 4,9 fm (ekki inni í fermetratölu íbúðar).
Þvottahús/þurrkherbergi: Sameiginlegt, á jarðhæð.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginlegt, á jarðhæð.
Framkvæmdir og endurbætur:2026 Skipt um skólplagnir í stigaganginum (61) og stigagangi 59
2026 Málað gólf í geymslu íbúðarinnar í kjallaranum
2025 Skipt um skólplagnir í stigagangi 57
2024 Skipt um glugga í stigagangi
2023 Loftstokkahreinsun í stigagangi
2021 Nýtt klósett og innréttingar á baðherbergi
2021 Málað í kringum alla glugga
2020 Skápar í svefnherbergi málaðir
Staðsetning eignarinnar er afar miðsvæðis og eftirsótt. Hér er stutt í alla helstu þjónustu. Verslanir og skólar eru í göngufæri. Fallegar göngu- og hjólaleiðir um Fossvog, Kópavogs- og Elliðaárdal tengja íbúabyggðina við náttúruna.
Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook