Fimmtudagur 12. mars
Fasteignaleitin
Skráð 19. jan. 2024

Bjarkarholt 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
91.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.000.000 kr.
Fermetraverð
819.672 kr./m2
Fasteignamat
65.150.000 kr.
Brunabótamat
53.350.000 kr.
Mynd af Hrafnkell P. H. Pálmason
Hrafnkell P. H. Pálmason
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignir í sölu
Fasteignanúmer
2521557
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
06
Lóðarréttindi
Leigulóð
*** HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI ***

LIND Fasteignasala og Arnahvoll kynna með stolti Bjarkarholt 17-19. Um er að ræða 58 nýjar og glæsilegar íbúðir í vönduðu fjölbýlishúsi. Fjölbreyttar 2ja - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílageymslu flestum íbúðum.  
Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum. Öllum íbúðum fylgir innbyggð AEG uppþvottavél og AEG innbyggður ísskápur.   
 
Allar nánari upplýsingar veita: 
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / hrafnkell@fastlind.is  / 690 8236 

Arinbjörn Marinósson Löggiltur fasteignasali / arinbjorn@fastlind.is / 822 8574 
 
Eining má sjá heimasíðu verkefnisins. Skoðaðu með að smella hérna:    bjarkarholt17-19.is 
 
Íbúð 206: Er glæsileg 3ja herbergja íbúð. Heildarstærð er 91,5 fermetrar og er staðsett á 2. hæð hússins. Íbúðinni fylgir 10,4 fermetra geymsla. Svalir eru 6,0 fermetrar að stærð og snúa til norðvesturs.
  
 
Frágangur íbúða inni: Íbúðir verða afhentar tilbúnar með gólfefnum. Léttir innveggir eru hlaðnir með Lemga milliveggjastein spartlaðir og málaðir. 
Gólf: Gólf á baðherbergjum eru flísalögð með 60 x 60 cm ljósum flísum. Gólf á íbúðum verður parketlagt með harðparketi. 
Veggir: Veggir eru spartlaðir og málaðir. Veggir á baðherbergjum eru flísalagðir á tvo vegu. Veggjaflísar á baðherbergjum eru 60 x 60 cm í ljósum lit. 
Innihurðir: Allar hurðir eru hvítar og yfirfelldar með svörtum hurðarhúnum. 
Innréttingar: Allar innréttingar eru frá Parka af gerðinni Taumona. 
Eldhús: Eldhúsinnrétting er úr hvítu melamin. Borðplötur eru harðplastlagðar dökkar með marmaraáferð. Eins hólfs eldhúsvaskur úr stáli, með einnarhandar blöndunartæki, Grohe eða sambærilegt. Í innréttingu er AEG spanhelluborð, AEG veggofn með blæstri, útdraganlegur gufugleypir er undir efri skáp.  
Baðherbergi: Innréttingar á baðherbergjum afhendast með speglaskáp, skápar eru hvítir, borðplötur eru harðplastlagðar og höldur eru úr stáli í svörtum lit. Sturtur eru með sturtugleri. Flísalögn á baði mun ná upp í 240cm. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergjum.  
Rafmagn: Ljós eru á baðherbergi, í þvottahúsi og í eldhúsi. Nettenglar eru í herbergjum. Rofar og tenglar eru hvítir. 
Eldhúsraftæki: Eldhúsraftæki eru frá AEG. Ljós verða undir efri skápum í eldhúsi. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð frá AEG. 
Búnaður: Dyrasímar með símtóli skv. teikningum, myndavélasímar í íbúðum með sameiginlegum stigagangi.  
Hreinlætistæki: Vegghengt salerni með hæglokun á setu. Handlaug er með einnar handar blöndunartæki, Grohe eða sambærilegt. Sturta með hitastýrðum blöndunartækjum ásamt sturtustöng með haus og handúðara.  
Eldhús: Eins hólfs eldhúsvaskur úr stáli, með einnar handar blöndunartæki, Grohe eða sambærilegt. 
Geymslur: Útveggir og sumir innveggir eru steyptir og verða grófviðgerðir og málaðir. Aðrir veggir geymsla eru úr álveggjakerfi frá GMS. Engar hillur fylgja. Fast ljós í loftum. 
 
Frágangur utanhúss: Burðarkerfi eru samkvæmt burðarþolsteikningum. Húsið er allt einangrað að utan með 100 mm steinull og klætt með sléttri málmklæðningu. Léttir innveggir eru hlaðnir með Lemga milliveggjasteinum og spartlaðir og málaðir. 
Gluggar/gler: Gluggar eru ál/timbur frá Idealcombi A/S. Opnanlegir gluggar og svalahurðir eru með opnunarstillingu til loftunar. Gler er  tvöfalt með gasfyllingu, 10 ára ábyrgð framleiðanda fylgir. Hluti glugga/glers skal uppfylla hljóðkröfur skv. teikningum.  
Lóð: Lóðarfrágangur verður skv. teikningum landslagsarkitekta. Snjóbræðsla á göngustígum samkvæmt teikningu. Bílastæði verða malbikuð og  afmörkuð með máluðum línum.  
Bílageymslur: Frágangur á bílageymslum skv. teikningu, grófviðgerðir og málaðir. Sprungur geta myndast á yfirborði í bílageymslu sem ekki eru meðhöndlaðar frekar. 
Útveggir: Allir veggir eru staðsteyptir, einangraðir að utan og klæddir með sléttri álklæðningu. Litur klæðningar er mismunandi skv. hönnun arkitekta. 
Lóð: Lóð, ásamt bílastæðum og innakstursleiðum, afhendist fullbúin skv. teikningum lóðarhönnuðar.  
 
Umhverfi: Bjarkarholt 17-19 er á frábærum stað í miðbæ Mosfellsbæjar. Næsta stoppistöð fyrir strætisvagna er aðeins í 120 metra göngufæri. Fallegt útsýni er til fjalla, Esjan til norðurs, Akrafjall og Snæfellsjökull til vesturs, nær eru Úlfarsfell, Lágafell, Reykjafell og Helgafell. Stutt er í íþróttasvæði, líkamsrækt, sundlaugar, útivistarsvæði, golf- og folfvelli. Helsta þjónusta, matvöruverslanir, veitingastaðir og skyndibitastaðir eru í göngufæri. Leikskólar, grunnskólar og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og fleiri leiksvæði eru í nágrenninu. Mosfellsbær tekur þátt í verkefninu Barnvænt sveitarfélag í samvinnu við Unicef á Íslandi og hefur það að markmiði að bæta aðstæður barna innan sveitarfélagsins. 
 
*ATH* *Myndir að innan sem fylgja auglýsingu er dæmi um íbúðir og eiga ekki við um allar íbúðir í húsinu. 
 
Arkitekt: Arkform arkitektar. 
Burðarþolshönnun: Riss. 
Lagnahönnun: Teknik. 
Raflagnahönnun: Gunnar Viggósson. 
Lóðahönnun: Lilium teiknistofa. 
Byggingaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll. 
Seljandi og lóðarhafi: FA01 ehf. 

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, 
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.  


Bjarkarholt 19 - 206 Suðursvalir , 270 Mosfellsbær, nánar tiltekið eign merkt 02-06, fastanúmer 252-1557 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Bjarkarholt 19 - 206 Suðursvalir er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-1557, birt stærð 91.5 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
14/05/202565.150.000 kr.78.900.000 kr.175.8 m2448.805 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (38)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brattahlíð 3-0101
Bílskúr
Brattahlíð 3-0101
810 Hveragerði
140.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
43
641 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Lundarbrekka 16
Lundarbrekka 16
200 Kópavogur
107.6 m2
Fjölbýlishús
514
716 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Skoða eignina Garðatorg 2
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Garðatorg 2
Garðatorg 2
210 Garðabær
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
1011 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Báruklöpp 25
Opið hús:12. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Báruklöpp 25
Báruklöpp 25
250 Garður
105.9 m2
Raðhús
312
694 þ.kr./m2
73.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin