Vel skipulagt og fjölskylduvænt 240,1 fm. parhús á 2. hæðum, þar af er 26 fm. innbyggður bílskúr. Húsið er vel staðsett við Leiðhamra 37, 112 Grafarvogi. Lóðin er með upphitað bílaplan og verönd í suður.Skipulag telur: Þrjú mjög rúmgóð svefnherbergi (og með möguleika á fjórða herberginu) Tvær stofur, eldhús, sér þvottahús, og tvö baðherbergi. Í bílskúrnum er gott óskráð geymsluloft.
Bókið skoðun hjá Ásmundi í síma 895-3000 eða með tölvupósti á netfangið asi@hofdi.is Nánari upplýsingar: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, gólfhiti. Inn af forstofu er sér þvottahús með flísum á gólfi og opnanlegum glugga, innangengt í eldhús. Innangengt er einnig í mjög rúmgóðan bílskúr úr forstofu. Heitt og kalt vatn. Frá forstofu er komið inn í alrými með parketi á gólfi sem tengir saman stofu, sólstofu, eldhús og borðstofu. Á neðri hæð er fallegt baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, handlaug og salerni og sturtu. Stofan er rúmgóð og björt með gluggum sem vísa út að verönd hússins í suður. Frá sólstofu er hægt að ganga út um franska svaladyr út á verönd hússins. Sólstofa er flísalögð, gólfhiti. Frá stofu er gengið inn í sér borðstofu með parket á gólfi (hægt væri að útbúa það rými sem fjórða svefnherbergi hússins). Eldhús með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu. Í eldhúsinu er borðkrókur og falleg eldhúsinnrétting með gott vinnu- og skápapláss, granítborðplata. Frá holi er góður stigi á efri hæð. Þegar upp á efri hæð er komið, er miðrými með hátt til lofts og aðgengi inn í öll þrjú svefnherbergin og baðherbergi hússsins. Miðrýmið er mjög rúmgott og nýtist líka vel sem sjónvarpsherbergi/fjölskyldurými með stórum glugga sem gefur gott útsýni yfir borgina og útgangi á svalir. Hæðin er að hluta til undir súð, hátt er til lofts þar sem hæst er. Innangengt úr miðrými er í hjónaherbergið, mjög rúmgott og bjart herbergi með fataskápum og parket á gólfi. Þar við hlið er svo tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með parketi á gólfi, fataskápar í báðum. Nýlega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum. Upphengt salerni, handlaug, rúmgóð sturta ásam handklæðaofni, hornbaðkar, gólfhiti.
Verönd sem snýr í suður er með gott útsýni, lóðin er öll mjög snyrtileg. Bílaplan og gangstétt að innkomu inn í húsið er hellulagt með hitalögn undir.
Útivistarsvæði er við enda götunnar ásamt mjög fallegum og skemmtilegum göngu- og hjólreiðar leiðum meðfram voginum og sjónum með fallegt og mikið útsýni. Skóli og leikskóli í göngufæri.