Flott fjögurra herbergja, mikið endurnýjuð, 106,2 m², sérhæð í þríbýlishúsi við Ásenda 14, í 108 Reykjavík. Íbúðin er björt og rúmgóð og skiptist í forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi, hol og þrjú svefnherbergi. Suður svalir eru út frá stofu. Eignin er skráð 106,2 m² hjá HMS
* Sér inngangur
* Mikið endurnýjuð, sjá neðar í lýsingu.
* Suður svalir
* Vinsæl staðsetning í 108 Rvk.
* Sérstæði og bílskúrsréttur.
Allar nánari upplýsingar veitir Edwin Árnason, löggiltur fasteignasali, í síma: 893 2121 eða edwin@palssonfasteignasala.is
******palssonfasteignasala.is*****
*****verdmat.is****
*****www.eignavakt.is*****
Nánari lýsing.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð undanfarin ár og verið er að sprungu viðgera húsið að utan og mála og verður því skilað nýmáluðu. Einnig eru nýjir gluggar og gler, skipt um sumarið 2026. Eldhús endurnýjað 2018, ásamt harðparketi á hæðinni, baðherbergi endurnýjað 2021. Þakið yfirfarið 2015, samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda.
Gólfefni: harðparket er á alrými, eikarparket á herbergjum og holi, flísar á forstofu og baðherbergi.
Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi.
Eldhús: eldhús er rúmgott og endurnýjað 2018, eldhúsið er opið að stofu, fallegar hvítar eldhúsinnréttingar og eldunareyja, gott skápa og vinnupláss.
Stofa: rúmgóð og björt stofa. Útgengi er frá stofu út á suður svalir.
Borðstofa: borðstofa og stofa eru í sama rými.
Hol: hol tengir saman herbergi og alrými, fataskápur í holi.
Baðherbergi: flísalagt i hólf og gólf, falleg mahogany innrétting, walk in, sturta og upphengt salerni
Svefnherbergi I: rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi 2: gott svefnherbergi með fataskáp.
Svefnherbergi 3: gott svefnherbergi án skápa.
Þvottahús: sameiginlegt þvottahús í sameign í kjallara
Geymsla: góð geymsla er í sameign í kjallara og sameiginleg útigeymsla með efri hæðinni í enda innkeyrslu.
Hellulagður garður er að framanverðu og hellulögð innkeyrsla með bílskúrsrétti sem tilheyrir íbúðinni.
Íbúðin er vel staðsett í Bústaðahverfinu í Reykjavík. Grunnskóli og leikskóli eru í göngufæri og verslanir og ýmis þjónusta eru í næsta nágrenni. Stutt í Fossvogsdalinn og fallegar gönguleiðir og grænt svæði/almenningsgarður með leikvelli er beint aftan við húsið.
Allar nánari upplýsingar veitir Edwin Árnason, löggiltur fasteignasali, í síma: 893 2121 eða edwin@palssonfasteignasala.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Pálsson Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi sjá heimasíðu viðkomandi lánastofnunar..
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 76.880 kr. m.vsk.