Miðvikudagur 18. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 18. nóv. 2026

Norðurtún 1

EinbýlishúsNorðurland/Siglufjörður-580
227.5 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
55.000.000 kr.
Fermetraverð
241.758 kr./m2
Fasteignamat
56.750.000 kr.
Brunabótamat
103.300.000 kr.
AE
Arndís Erla Jónsdóttir
Byggt 1980
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2130811
Landnúmer
142854
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ágætt
Raflagnir
ágætt
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ágætt
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
já
Lóð
100
Upphitun
já
Inngangur
Sérinngangur
Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Norðurtún 1, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0811 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurtún 1 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0811, birt stærð 227.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.


Um er að ræða einbýlishús með stórum garði, frábæru útsýni og skjólgóðum grónum garði. Tekið skal fram að burður efri hæðar liggur í þaki og því lítið mál að breyta skipulagi efri hæðar. 

Eignin skiptist í efri og neðri hæð með bílskúr.
Efri hæð samanstendur af forstofu, stofu, eldhúsi, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, fimm svefnherbergjum og andyri. Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð með miklu gluggaplássi og sérútgang út á pall í garði. Eldhús liggur við stofu með léttum vegg á milli. Einnig er aflokað búr/geymsla með glugga og opnanlegu fagi inn af eldhúsi með léttum vegg. Þvottahús er með sérútgang og glugga með opnanlegu fagi. Hjónaherbergi er með sérútgang út í garð.
Neðri hæð eignarinnar býður upp á marga möguleika og er að hluta til óklárað en grafið var út úr kjallara og jarðvegur lagður og járnabundinn en eftir á að steypa gólf að hluta. Neðri hæð samanstendur því að bílskúr og geymslu í dag. Sérútbúin geymsla er með sérinngang sem hugsuð var fyrir sorpgeymslu við hlið bílskúrs.  
Garður er rótgróinn með miklum gróðri og stórum palli aftan við hús. Vel hefur verið hugað að garðinum. Plan fyrir framan bílskúr er möl. 

Forstofa: er með flísum á gólfi og góðu fatahengi. Gestasnyrting er inn af forstofu. 
Eldhús: hvítar innréttingar með efri og neðri skápum og viðar borðplötu. Flísar eru á milli skápa. Plast parket er á gólfi. Vaskur, eldavél, bökunarofn og háfur. 
Búr/geymsla: Búr er inn af eldhúsi með miklu hilluplássi, glugga og opnanlegu fagi. Timburveggur er á milli eldhúss og búrs. 
Þvottahús: er einnig inn af eldhúsi með flísum á gólfi. Sérútgangur er út á pall að framan úr þvottahúsi. Gluggar með opnanlegu fagi. 
Stofa/borðstofa: er samliggjandi við eldhús einnig aflokuð með timburveggjum. Stofa er mjög rúmgóð með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Útgangur er úr stofu út á pall í garði bak við eignina. 
Svefnherbergi: eru fimm talsins og eru misstór. Hjónaherbergi er með sérútgang út í garð bak við eignina. 
Baðherbergi: eru tvö annað inn af anddyri sem er lítið með flísum á gólfi, vask og klósetti. Hitt er stærra og er staðsett inn á svefnherbergisgangi. Í því er baðkar og frístandandi sturtuklefi, hvít innrétting, vaskur og gólftengt klósett.
Bílskúr: er steyptur með bílskúrshurð. Inntaki fyrir vatn er í bílskúr. Búið er að grafa stærra rými sem búið er að undirbúa en á eftir að steypa hluta af gólfflöt. Mikið geymslurými er á neðri hæð en möguleiki er á að bæta við gluggum og því hægt að bæta við herbergjum. 

Áætlað er að fara í þak og þakkanta í vor einnig steypa þann hluta gólfflatar í bílskúr sem vantar. Búið er að fá tilboð í það verk sem kaupanda stendur til boða að ganga inn í. 



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/12/202132.150.000 kr.25.000.000 kr.227.5 m2109.890 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarvegur 35
Skoða eignina Hlíðarvegur 35
Hlíðarvegur 35
580 Siglufjörður
208 m2
Einbýlishús
71
336 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hávegur 58
Skoða eignina Hávegur 58
Hávegur 58
580 Siglufjörður
235,2 m2
Einbýlishús
715
352 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvegur 16
Skoða eignina Fossvegur 16
Fossvegur 16
580 Siglufjörður
244,8 m2
Einbýlishús
725
Fasteignamat 59.250.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Dverghamrar 7
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Dverghamrar 7
Dverghamrar 7
112 Reykjavík
214,4 m2
Einbýlishús
614
792 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin