Laugardagur 21. febrúar
Opið hús:25. feb. kl 16:15-17:00
Skráð 21. feb. 2026

Heiðarlundur 3e

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
117.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.500.000 kr.
Fermetraverð
703.925 kr./m2
Fasteignamat
73.000.000 kr.
Brunabótamat
63.100.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1975
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2147184
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
óþekkt
Raflagnir
Hefur verið endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
óþekkt
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja glugga á bakhliðinni. Nýjir gluggar í framhlið fylgja með við sölu eignar
Þak
sjá yfirlýsingu húsfélags.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Steyptar suður svalir.
Upphitun
Hitaveita - gólfhiti er á neðri hæðinni
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá yfirlýsingu húsfélags dagsetta 21.2.2026
Gallar
Smávægilegur leki kom upp í vetur og má sjá ummerku um það í hjónaherbergi. Verktakinn sem sá um endurbætur á þakinu, HeiðGuð ehf mun koma og laga það á sinn kostnað. 
Eignin er ekki að fullu í samræmi við teikningar.
Enginn eignaskiptasamningur er til fyrir húsið. 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Heiðarlundur 3e - Mikið endurnýjuð 5 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 117,2 m²

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Neðri hæð 58,3 m²:
Forstofa, þvottahús, snyrting, eldhús, stofa og borðstofa. 
Efri hæð 58,9 m²: Hol, hjónaherbergi með fataherbergi, þrjú barnaherbergi og baðherbergi 

Forstofa er með harðparketi á gólfi. Hitalagnir eru í hluta af stétt fyrir framan.
Eldhús, falleg hvít innrétting með dökkri bekkplötu og flísum á milli skápa. Gott skápapláss. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. 
Stofa og borðstofa eru í opnu rými þar sem harðparket er á gólfum, stórir suður gluggar og hurð út á rúmgóða timbur verönd.
Teppalagður timburstigi eru upp á efri hæðina. Geymslurými er undir stigapallinum og er farið inn í það úr þvottahúsi. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi, öll með harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp. Hjónaherbergið er ágætlega rúmgott og með vel innréttuðu fataherbergi. Úr hjónaherberginu er hurð út á steypta suður svalir. Fellistigi er í loftinu upp á geymsluloft. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc, handklæðaofni og baðkari með sturtutækjum. 
Lítil snyrting er á neðri hæðinni með harðparketi á gólfi og flísum á hluta veggja, upphengdu wc og handlaug. 
Þvottahús er við hliðina á forstofunni og nýtist sem annar inngangur fyrir eignina. Þar eru flísar á gólfi og hvít innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og bekkur með vask.

Annað
- Gólfihiti er á neðri hæðinni.
- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að hluta. 
- Hvítar innihurðar.
- Loftaklæðning á efri hæðinni hefur verið endurnýjuð og þar er innfelld led lýsing. 
- Fyrir framan íbúðina er nýlegur einangraður geymsluskúr fyrir t.d. hjóla og annað.
- Rúmgóð timbur verönd er á baklóðinni með smá geymslurými fyrir t.d. grill og garðhúsgögn.
- Svalir voru múrviðgerðar árið 2025.
- Búið er að skipta um alla glugga á bakhlið eignar.
- Nýjir gluggar í framhlið eignar fylgja með við sölu eignar.
- Vel staðsett eign - örstutt í leik- og grunnskóla og íþróttarsvæði KA.
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
01/11/202240.200.000 kr.63.300.000 kr.117.2 m2540.102 kr.
13/10/202039.350.000 kr.44.300.000 kr.117.2 m2377.986 kr.
06/09/201830.850.000 kr.42.560.000 kr.117.2 m2363.139 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekkugata 38
Bílastæði
Skoða eignina Brekkugata 38
Brekkugata 38
600 Akureyri
107.6 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðartún 2 íbúð 101
Bílskúr
Heiðartún 2 íbúð 101
600 Akureyri
114.9 m2
Fjölbýlishús
312
695 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Víðilundur 15
Skoða eignina Víðilundur 15
Víðilundur 15
600 Akureyri
105.5 m2
Raðhús
312
757 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Halldóruhagi 8 202
Halldóruhagi 8 202
600 Akureyri
101.8 m2
Fjölbýlishús
413
785 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin