RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Bjarta, rúmgóða 93,0 fm 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli með sér stæði í bílageymslu. Eignin er sérlega vel staðsett í hverfinu og eru einungis fimm íbúðir í stigaganginum. Þvottahús er innan íbúðar - Grunnlögn komin í stæði í bílaageymslu fyrir hleðslustöð og er myndavéladyrasími í íbúð. SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D 3D - ER = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.Innan íbúðar eru: tvö svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa.
Nánari lýsing eignar: Í
forstofunni sem er opin að alrými er fataskápur og parket á gólfi.
Herbergi I er barnaherbergið sem er í góðri stærð með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi II er hjónaherbergið sem er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í opnu björtu rými með gluggum bæði til suðurs og vesturs, parketi á gólfi og útgengi á góðar vestur svalir.
Eldhúsinnréttingin er hvít háglans með span helluborði og bakaraofni í eyju og háfur þar yfir, góðu skáparými, innbyggðum ísskáp
(keypt 2024) og uppþvottavél sem fylgja með og parket á gólfi.
Skrifstofu hol - er búið að stúka af með hillum og klæða með akupanil þar sem borðstofa er ætluð á upphaflegum teikningum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, baðkari með sturtugleri og innréttingu undir handlaug.
Þvottahús er við hlið baðherbergis, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hillum og flísum á gólfi.
Sér geymsla íbúðar er í kjallara sameignar með veggföstum hillum á einum vegg.
Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Í
lokaðri bílageymslu er sérmerkt stæði íbúðar og er innangengt í húsinu. Bílskúrshurð var endurnýjuð sept 2024. Búið er að leggja grunnlagnir fyrir rafhleðslu við öll stæði í bílageymslunni.Birt stærð íbúðar er 87,2 fm (02-0204) og geymslu er 5,8 fm (02-0014), alls 93,0 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. Básbryggja1 stendur á sameiginlegri lóða húsanna Básbryggja 1 - 3 og Naustabryggja 2 og tengjast húsin öll. Húsfélag er fyrir Básbryggju 1 - 3 og Naustabryggju 2 og er það deildar og hlutfallaskipt gjöldin í heildina sbr. Eignaskiptayfirlýsingu.
Um er að ræða vel staðsetta eign í sérlega rólegu og grónu hverfi.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAX Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk