Föstudagur 30. október
Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2026

Meistaravellir 33

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
81.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
71.000.000 kr.
Fermetraverð
871.166 kr./m2
Fasteignamat
70.000.000 kr.
Brunabótamat
43.450.000 kr.
HJ
Hallveig Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
stofnfasteignasala.isEignalisti
Byggt 1965
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2025800
Landnúmer
105995
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Raflagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Frárennslislagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Gluggar / Gler
Í lagi að sögn seljanda.
Þak
Í lagi að sögn seljanda.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestursvalir
Upphitun
sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Björt og vel skipulögð 81,5 fm, 3ja herbergja búð með útsýni á 4. hæð við Meistaravelli 33 í Vesturbæ Reykjavíkur.
Eignin státar af miklu útsýni til sjávar, yfir Álftanes, Reykjanesið og KR-völlinn. Frá stofu er gengið út á suðvestursvalir þar sem njóta má útsýnisins. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgott stofu- og borðstofurými. Skipulagið er gott, með svefnherbergjum og baðherbergi á sér gangi.
Eignin Meistaravellir 33 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-5800, birt stærð 81,5 fm, þar af er 4,2 fm sérgeymsla.

Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is.

Eignin skiptist í:
Forstofu, rúmgóða stofu með útgengi á suðvestursvalir, eldhús með borðkrók og tengi fyrir þvottavél, tvö svefnherbergi og baðherbergi, 4,2 fm sérgeymsla í kjallara. Sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla í kjallara hússins.

Helstu kostir eignar:
  • Glæsilegt og víðáttumikið útsýni til sjávar, yfir Álftanes, Reykjanesið og KR-völlinn.
  • Suðvestursvalir og björt stofa með stórum gluggum.
  • Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með tveimur svefnherbergjum og afmarkaðri vinnuaðstöðu sem auðvelt er að breyta.
  • Eftirsótt staðsetning í grónu hverfi í Vesturbæ Reykjavíkur, þar sem stutt er í þjónustu, íþróttaaðstöðu og útivist.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi á suðvestursvalir. Í hluta stofunnar hefur verið komið fyrir skilrúmi sem afmarkar vinnuaðstöðu sem nú er nýtt sem heimaskrifstofa.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, viðarlituðum borðplötum og góðu skápa- og vinnuplássi. Efri skápar eru að hluta með glerhurðum og gráar flísar eru á milli skápa. Helluborð með gashellum. Flísar á gólfi. Við glugga er notalegur borðkrókur með fallegu útsýni. Tengi fyrir þvottavél er í eldhúsinu.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Innbyggðir, hvítir fataskápar með rennihurðum sem ná upp undir loft.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er með ljósum flísum á veggjum og mósaíkflísum á gólfi. Baðkar með sturtu og glerskilrúmi.
Geymsla: Í kjallara hússins er 4.2 fm sérgeymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Stigagangur: Snyrtilegur með teppi á gólfum. Tvær íbúðir eru á hverjum stigapalli. Ekki er lyfta í húsinu.
Sameign: Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla með útgengi. Þar er einnig geymslugangur með sérgeymslum íbúða.
Lóð og aðkoma: Snyrtileg aðkoma að húsinu og næg bílastæði við húsið.

Viðhald: 
Þak tekið í gegn árið 2013.
Gert við gluggapósta og skipt um öll gler árið 2018.
Múrviðgerðir á veggjum og svalargólfum við Meistaravelli 31-35 árið 2019.

Staðsetning:
Meistaravellir 33 er staðsett í grónu og eftirsóttu íbúðahverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Hverfið er vinsælt fyrir nálægð við fjölbreytta þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og útivistarsvæði. Í næsta nágrenni er íþróttasvæði KR, Vesturbæjarlaug og fjölbreytt þjónusta í Vesturbænum. Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram Ægissíðu og strandlengjunni.

Nánari upplýsingar veitir Hallveig Jónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 699 0496 eða á netfanginu hallveig@stofnfasteignasala.is.

Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/09/201421.750.000 kr.28.000.000 kr.81.5 m2343.558 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Boðagrandi 3
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:02. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Boðagrandi 3
Boðagrandi 3
107 Reykjavík
98,3 m2
Fjölbýlishús
413
864 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Tunguheiði 14
tunguheidi-14.jpg
Skoða eignina Tunguheiði 14
Tunguheiði 14
200 Kópavogur
91,4 m2
Fjölbýlishús
321
788 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 7 íb. 508
Opið hús:03. nóv. kl 17:15-17:45
Baughamar 7 íb. 508
221 Hafnarfjörður
63,4 m2
Fjölbýlishús
21
961 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 7 íb. 509
Opið hús:03. nóv. kl 17:15-17:45
Baughamar 7 íb. 509
221 Hafnarfjörður
95,5 m2
Fjölbýlishús
413
791 þ.kr./m2
75.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin