SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU*-*FLOTT ÍBÚÐ Á MÓTI SUÐRI Á FRÁBÆRUM STAÐ*
Glæsileg og vel hönnuð ný íbúð á Las Colinas golfsvæðinu. Íbúðin er á jarðhæð með góðu útisvæði til suðurs. Sér sundlaugargarður með góðri sameiginlegri aðstöðu, sér stæði í bílakjallara og geymsla.
Rúmgóðar íbúð, tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu.
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Lengi hefur verið beðið eftir íbúðum á þessum stað. Þessi var seld, en kom til baka þar sem fjármögnun náðist ekki.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. GSM 0034 615 112 869,
Lýsing:Þessi frábæra íbúð er á einum vinsælasta staðnum á Las Colinas. Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Góð verönd á móti suðri.
Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum. Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góður kaupauki fylgir með, hafið samband og kynnið ykkur málið.
Margir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK.
Íbúð með 2 svefnh. + 2 baðh.
Verð frá 465.000 Evrum (ISK 67.400.000) + kostn. við kaupin
Íbúð 74 fm
verönd 45 fm
Samtals 119 sérafnotafm.
Auk þess sér bílastæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.
Einnig eru á sama stað í boði Íbúðir með 3 svefn. + 2 baðh.
Verð frá 625.000 evrur (ISK 90.600.000ISK) + kostn. við kaupin.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,