Einstök eign á 11,1 hektara landi í Rangárþingi ytra með stórkostlegu útsýni, miklu næði og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum á eftirsóknarverðu svæði.- 11,1 hektara lóð með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum
- Mikið næði og friðsæl staðsetning í einstaklega fallegu umhverfi
- Stórkostlegt útsýni og víðáttumikil náttúra allt um kring
- Stór pallur sem umlykur húsið og skapar einstaka útivistaraðstöðu
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Andrea Ósk Harradóttir astmf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 55,4 fm með 3,7 fm útigeymslu. Lóðin er skráð 11,1 hektarar.Skipting eignarEignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi og bjart opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi þar sem útgengt er á stóran pall sem umlykur húsið. Útigeymsla með þvottaaðstöðu.
Nánari lýsing eignarUm er að ræða fallega eign á 11,1 hektara lóð í Rangárþingi ytra þar sem næði, ró og náttúran njóta sín til fulls.
Forstofa / inngangur Gengið er inn í eignina um inngang sem opnast inn í bjart og notalegt alrými.
Stofa / borðstofa / eldhúsBjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda notalegt samverurými með fallegu útsýni yfir umhverfið.
SvefnherbergiEignin býður upp á þrjú, björt og rúmgóð svefnherbergi.
BaðherbergiBaðherbergi eignarinnar er snyrtilegt og bjart. Sturta er með þægilegu aðgengi
Útigeymsla / þvottaaðstaðaSér útigeymsla fylgir eigninni þar sem þvottaaðstaða er staðsett.
Pallur / útiaðstaðaStór pallur umlykur húsið og skapar frábæra aðstöðu til útivistar og samveru í fallegu og friðsælu umhverfi. Þá er einnig aðstaða til staðar fyrir heitapott.
Lóð / umhverfiEignin stendur á einstakri 11,1 hektara lóð þar sem næði, víðáttan og náttúrufegurð svæðisins njóta sín til fulls.
NýtingarmöguleikarEignin býður upp á fjölbreytta möguleika, hvort sem leitað er að friðsælum stað til eigin nota, heilsársbúsetu eða fyrir þá sem sjá tækifæri í atvinnu- eða ferðaþjónustutengdri nýtingu, en á svæðinu hefur vinsæl ferðaþjónusta byggst upp á síðustu árum. Í næsta nágrenni má meðal annars finna vinsælar ferðaþjónustueignir á borð við Panoramic Glass Lodge og Afternoon Cottages.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.