Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:
Stóra og bjarta endaíbúð á annarri hæð, í litlu fjölbýli, með lyftu, mjög stórri geymslu og stæði í bílageymslu.
Um er að ræða eign á efstu hæð (aðeins tvær hæðir), sem var byggð 2008, inniheldur tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, fataherbergi, stórt alrými ásamt góðum suðursvölum.
Stærð íbúðar er rétt um 133 fm, stór geymsla í kjallara er um 25 fm og því heildar stærð birt samtals 158 fm.
Til viðbótar er rúmgott einkastæði í bílageymslu.
Núverandi eigendur hafa búið í eigninni síðan 2019.
Húsið skiptist í tvo stigaganga (7a og 7b) og í hvorum stigagangi er sex íbúðir alls, þrjár íbúðir uppi og þrjár niðri.
** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is
Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningu og þarf að bóka skoðun!
Nánari lýsing:
Forstofa (5,8 fm) - mjög rúmgóð með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Minna herbergið (11,6 fm) - hægra meginn við forstofuna, rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Stærra herbergið (18,4 fm (herb) + 5,7 fm (Baðherb) + 7,8 fm (Fataherb)) - rúmgott með sér baðherbergi (Sturta) og fataherbergi, parket á gólfi nema á baðherbergi flísar.
Aðalbaðherbergi og þvottahús (8,3 fm) - rúmgott með baðkari, góðri innréttingu með vaski, upphengt wc, stór innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og góðu skápaplássi, flísar á gólfi.
Eldhús/Borðstofa/Stofa - opið í stóru og björtu alrými móti suðurgluggum. Eldhúsið með innréttingu á einum vegg og stór eyja á móti. Stofa er með útgengi á 18,5 fm suðursvalir þar sem búið er að setja upp skjólvegg við horn hússins.
Stór geymsla (25 fm) - er í kjallara með góðu aðgengi, tvöföld hurð og stutt frá bílastæðinu.
Bílastæði - er í bílageymslu, merkt B06, mjög rúmgott og auðvelt að leggja. Tengipunktar fyrir rafhleðsluleiðir eru í bílageymslunni.
Virkilega falleg, björt og rúmgóð eign vel staðsett á Akralandinu í Garðabæ, stutt í alla helstu þjónustu og mjög miðsvæðis.
Pöntun á skoðun og nánari upplýsingar fást hjá:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.