** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 111,3 m2 3-4ra herbergja endaíbúð á 2.hæð, merkt 01-0201, í nýju fimm íbúða fjölbýlishúsi við Kolbrúnargötu 1 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 111,3 m2, þar af íbúð 104,7 m2 og geymsla 6,6 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu (væri hægt að breyta í herbergi). Sérgeymsla í sameign á jarðhæð. Rúmgóðar svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Eignin afhendist fullbúin í nóvember 2026 með gardínum, gólfefnum, innréttingum frá HTH og innbyggðum eldhústækjum. Búið að leggja rafmagn fyrir rafbílahleðslu frá ON á sameiginleg bílastæði. Skv. samþykktum bygginganefndarteikningum, þann 29.11.2024, þá er búið að fá samþykki fyrir svalalokunum á öllum íbúðum í húsinu. Íbúðirnar eru afhentar án svalalokana og eru kaupendur hvattir til að kynna sér vel skilmála svala og verandalokana, áður en þeir taka ákvörðun um að fara í þá framkvæmd.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Eldhúsinnrétting frá HTH með blástursofni, örbylgjuofni, spanhelluborði, viftu frá Airforce, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp og frystiskáp. Heimilistæki frá AEG. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Sjónvarpsstofa er með parketi á gólfi. Opið er inn í sjónvarpsstofu úr stofu. Hægt væri að setja upp vegg og bæta við þriðja svefnherberginu.
Svefnherbergi nr.1 (hjónaherbergi) er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofni og sturtu með sturtugleri.
Þvottahús er með innréttingu þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð hússins.
Á jarðhæð er sameiginleg
vagna- og hjólageymsla. Annað:Kolbrúnargata 1 er 2ja hæða fjölbýlishús með 5 íbúðum. Húsið er hannað af Garðari Snæbjörnssyni, arkitekt hjá GS-Teiknistofu ehf. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt. Húsið er byggt af Byggingarfélagi Bakka ehf en Bakki er fjölskyldufyrirtæki úr Mosfellsbæ, með yfir 40 ára reynslu af húsbyggingum. Félagið hefur byggt og afhent yfir 250 íbúðir í Mosfellsbæ á sl. 10 árum.
Lóð verður fullfrágengin, 10 bílastæði eru á lóðinni en þar af eru 1 fyrir hreyfihamlaða. Gönguleið að húsi er hellulögð með snjóbræðslu. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotarétt að lóð út frá stofu með afgirtri timburverönd. Íbúðir á 2. hæð eru með rúmgóðar svalir í suðurátt.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með innréttingum frá HTH. Heimilistæki eru frá AEG. Eikarlitað harðparket á gólfum, frá Birgisson. Flísar á baðherbergjum, þvottahúsi og á forstofu eru frá Birgisson. Blöndunartæki eru frá Tengi.
Verð kr. 91.500.000,-