Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega og rúmgóða 4-5 herbergja 124.3 fm íbúð á 2.hæð í litlu fjölbýli auk rúmgóður 31,5 fm bílskúr á þessum vinsæla og rólega stað í Setbergslandi Hafnarfirði. Fallegt útsýni.
Eignin er í göngufæri við skóla og leikskóla og stutt er í alla helstu þjónustu. Nýlega (2023) þá hefur Íbúðin verið öll endurnýjuð á vandaðan máta og m.a. er gólfhiti í gólfum. Eignin er skráð 155,8 fm skv. HMS en þar af er góður 31,5 fm bílskúr.
Endurnýjun 2023. Eldhús og baðherbergi. Innréttingar, innihurðar, gólfefni ofl, settur hiti í gólfin (vatnshiti) Allt endurnýjað í íbúðinni nema tveir skápar og hluti af rafmagni.Nánari lýsing eignar:Flísalögð forstofa með fataskáp.
Gott hol. Bjart og opið alrými. Glæsilegt rúmgott eldhús er opið inn í bjarta
borðstofu og stofu. Nýleg innrétting frá IKEA með góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður örbylgjuofn. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Spanhelluborð er á rúmgóðri eyjunni. Kvartssteinn er á borðum í eldhúsi.
Inn af eldhusi er sér þvottaherbergi. Tengi þar fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Nýleg innrétting, skolvaskur og gluggi.
Falleg rúmgóð og björt stofa og borðstofa. Þaðan er útgengt á
rúmgóðar skjólgóðar suðursvalir. Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.
Tvö svefnherbergi með nýlegum fataskápum.
Glæsilegt baðherbergi. Vandaðar flísar í hólf og gólf. Hvít vönduð Innrétting frá HTH með kvartssteins borðplötu og með innbyggðum vask. Upphengt salerni. Baðkar með sturtuaðstöðu í. Handklæðaofn. Gluggi.
Fallegt vandað nýlegt harðparket á gólfum. Nýlegar innihurðir.Bílskúr er rúmgóður og fullbúinn.
Hefðbundin sameign er snyrtileg. Nýlegt harðparket og flísar á gólfum. Gólfhiti. Kvartssteinn á sólbekkjum. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta - bætt við dimmerumUm er að ræða glæsilega og mikið endurnýjaða eign (2023) á þessum rólega og góða stað í Setberginu í Hafnarfirði. Þetta er eign í sérflokki sem vert er að skoða.Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is og
Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.