Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:
FLÓKAGATA 10 - EFRI HÆÐ - FRÁBÆR STAÐSETNING
EIGNIN ÞARFNAST STANDSETNINGAR OG TEKUR VERÐLAGNING MIÐ AF ÞVÍ.
KJÖRIÐ TÆKIFÆRI TIL EIGINFJÁRAUKNINGAR FYRIR FÓLK SEM GETA GERT HLUTINA SJÁLFEignin Flókagata 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-2002, birt stærð 78.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Ólafur Björn Blöndal í síma 6900811, eða olafur@gimli.is
Smellið hér til að sjá myndband af eigninniNÁNARI LÝSING:Um er að ræða efri hæð í þríbýlishúsi með saml. inngangi með miðhæðinni.
Fallegir gluggar í stigahúsi upp á stigapall íbúðarinnar.
Komið inn í hol með parketi í miðju íbúðarinnar þaðan sem gengið er í allar vistarverur.
Tvær rúmgóðar stofur með parketi og rennihurð á milli. Auðvelt að nýta aðra stofuna sem herbergi.
Suðursvalir úr annarri stofunni.
Eldhúsið bjart og rúmgott með gamalli málaðri innréttingu
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, sturtuklefi og gluggi.
Eitt svefnherbergi með parketi og hurðarlausum fataskáp.
Innangengt úr forstofu í kjallara hússins þar sem er sérgeymsla, saml. þvottahús og önnur sameign.
Samkvæmt upplýsingum eigenda og annarra eigenda hússins er búið að endurnýja rafmagnstöflu hússins, skólp og dren.
Það sem liggur fyrir að þarf að ráðast í á næstu misserum er endurnýjun á þaki, rennum og niðurföllum ásamt gluggum og gleri.
Niðurlag:Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala