Kasa fasteignir 461-2010.Margrétarhagi 18. Glæsileg og virklega vönduð 3-4 herbergja 167 fm raðhúsaíbúð með innbyggðum bílskúr í Hagahverfi.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús og stofu í opnu rými, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr ásamt steyptri verönd til vesturs.Forstofa: Er með flísum á gólfi og rúmgóðum forstofuskáp.
Hol: Þar er Vínyl parket á gólfum.
Eldhús: Er með góðri innréttingu með miklu skápa og skúffuplássi. Sérsmíðuð innrétting frá TAK innréttingum og Kvartsteinn í borðum. Bakaraofn er í vinnuhæð, helluborð er í eyju, innbyggður ísskápur og uppþvottavél eru í innréttingu.
Stofa: Er í sama rými og eldhús, í rýminu er aukin lofthæð og innfelld lýsing. Vínyl parket er á gólfum. Rennihurð er út á steyptan pall til vesturs.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og í kringum sturtu. Innrétting með skúffum og borðplata úr kvartstein. Rúmgóð sturta með sturtugleri og vegghengt salerni.
Gestasalerni: Er með flísum á gólfi, hvít innrétting og vegghengt salerni.
Svefnherbergi: Eru þrjú í eigninni, öll með vínyl parketi á gólfum og fataskápum. Gengið er út á verönd úr hjónaherbergi. Eitt herbergjanna er skráð geymsla á teikningu en nýtist sem herbergi.
Þvottahús: Er með hvítri innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Bekkplata með vaski er við innréttinguna.
Bílskúr: Er nokkuð rúmgóður með epoxý á gólfum. Í Bílskúrshurð er einnig gönguhurð. Inn af bílskúr er geymsluloft.
- Sérsmíðaðar dökkar innréttingar og fataskápar, hvítar innihurðar og ljós innréting í þvottahúsi.
- Kvartsteinn er á bekkjum í eldhúsi og á baðherbergi.
- Hljóðdempandi dúkur og innfelld lýsing í öllum loftum nema bílskúr.
- Plejd ljósakerfi.
- Vínyl parket í holi, alrými og herbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergjum og þvottahúsi. Epoxy í bílskúr.
- Loftskiptikerfi.
- Möguleiki á Arin í stofu.
- Lagnir fyrir heitanpott eru til staðar.
- Snjóbræðsla er í bílaplani.
- Gert ráð fyrir bílhleðslu í rafmangnstöflu búið að komi kapall út úr íbúð, þannig að einungis á eftir að draga vír.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.