3ja herbergja perla í Vesturbænum – Endurnýjaðir gluggar, frábært útsýni.
Miklaborg og Jón Rafn fasteignasali kynna bjarta og vel skipulagða endaíbúð á þriðju hæð við Hagamel með gluggum á þrjá vegu. Staðsetningin er eftirsótt og hentar einkar vel fyrir unga fjölskyldu enda stutt í leikskóla, Háskóla Íslands, Melabúðina, Kaffihús Vesturbæjar og Vesturbæjarlaugina, svo sitthvað sé nefnt.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Íbúðin nýtist í dag sem þriggja herbergja eign þar sem hluti stofu hefur verið stúkaður af og nýttur sem barnaherbergi en rennihurð er á milli. Rýmið er bjart og útgengt er á svalir sem skarta frábæru útsýni yfir hverfið og út á haf. Möguleikar til staðar til að breyta skipulagi íbúðar.
Stórt svefnherbergi með fataslá þar sem mætti koma fyrir fataskáp. Eldhúsið er sjarmerandi og vel viðhaldið með góðum borðkrók. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum og þar er baðkar og opnanlegt fag. Í sambærilegum íbúðum eru dæmi um að eldhúsinu hafi verið breytt í svefnherbergi og eldhúsaðstaða verið sett upp í stofu en stutt er í lagnir baðherbergis frá stofu. Þannig mætti með tilskilin leyfi breyta íbúðinni í 4ra herbergja íbúð. Sérgeymsla í sameign.
Allir gluggar íbúðar voru endurnýjaðir nýlega. Húsið var einnig sprunguviðgert, endursteinað og málað að utan árið 2018. Garðurinn er gróinn og snýr í suður.
Falleg eign á besta stað í Vesturbænum sem vert er að skoða en eignir með staðsetningu sem þessa í eftirsóttu fjölbýli Vesturbæjar Reykjavíkur koma ekki oft í sölu.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 29/04/2020 | 40.700.000 kr. | 44.900.000 kr. | 82.9 m2 | 541.616 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
107 | 82 | 79,8 | ||
107 | 82 | 79,8 | ||
107 | 82.9 | 77,5 | ||
107 | 87.8 | 74,9 | ||
107 | 96.7 | 74,9 |