Föstudagur 14. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 12. ágúst 2026

Frúarstígur 1

Atvinnuhúsn.Vesturland/Stykkishólmur-340
172.4 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
7 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
550.464 kr./m2
Brunabótamat
83.200.000 kr.
Byggt 1991
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
21157161
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun og Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasali s: 896-6160 / erla@landmark.is og félagi í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: **Einstakt tækifæri í ferðaþjónustu** 6 herbergja 172.4 fm gistiheimili á 2 hæðum við í Frúarstíg 1 í Stykkishólmi með möguleika á stækkun. Eignin er skráð 172.4 fm samkvæmt HMS:

Nánari lýsing á eign:
Rótgróið og vel þekkt gistiheimili á einum besta stað í miðbæ Stykkishólms. Akkeri Guesthouse er staðsett í göngufæri við höfnina, veitingastaði, verslanir og alla helstu þjónustu bæjarins og nýtur vinsælda meðal ferðamanna sem heimsækja Snæfellsnes. Í húsinu var áður rekinn veitingastaður en því var breytt í gistiheimili árið 2018.
Gistiheimilið býður upp á sex vel búin herbergi, öll með sér baðherbergi, þar af eitt með hjólastólaaðgengi. Frá einu herbergjanna er útgengt á svalir sem snúa til vesturs. Auk gistirýmis er í húsinu eldhús og rúmgóður salur þar sem morgunverður er framreiddur fyrir gesti. Reksturinn hefur verið byggður upp af metnaði með áherslu á góða þjónustu og notalegt umhverfi. Frábær staðsetning, traust rekstrarsaga og gott orðspor skapa góðar forsendur fyrir áframhaldandi rekstur.
Húsið er selt með öllum innanstokksmunum, þar á meðal húsgögnum, rúmfatnaði, leirtaui, eldhúsbúnaði og öllum þeim tækjum og búnaði sem nauðsynlegur er til reksturs gistiheimilis. Nýr eigandi getur því tekið við fullbúnum rekstri frá fyrsta degi.
Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er heimilt að byggja einnar hæðar viðbyggingu vestan við húsið, sem skapar spennandi möguleika til stækkunar og frekari uppbyggingar rekstrarins.
Þetta er einstakt tækifæri til að eignast rekstrarhæfa ferðaþjónustueign á einum eftirsóttasta stað á Snæfellsnesi. Akkeri Guesthouse sameinar frábæra staðsetningu, fullbúinn rekstur og framtíðarmöguleika í einum fallegasta sjávarbæ landsins.

Allar nánari upplýsingar veitir Erla Friðriksdóttir löggiltur fasteignasli í síma 896-6160 eða erla@landmark.is
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bugðufljót 15
Skoða eignina Bugðufljót 15
Bugðufljót 15
270 Mosfellsbær
168.6 m2
Atvinnuhúsn.
378 þ.kr./m2
63.800.000 kr.
Skoða eignina Grundargata 54
Skoða eignina Grundargata 54
Grundargata 54
350 Grundarfjörður
185.1 m2
Einbýlishús
614
351 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Koparslétta 14
Skoða eignina Koparslétta 14
Koparslétta 14
162 Reykjavík
173.3 m2
Atvinnuhúsn.
1
398 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Njarðarbraut 3A
Skoða eignina Njarðarbraut 3A
Njarðarbraut 3A
260 Reykjanesbær
155.2 m2
Atvinnuhúsn.
1
373 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin