Miklaborg kynnir: Atvinnuhúsnæði við Borgahellu 9 Hafnafirði með tveim ósamþykktum íbúðum á efri hæð. Um er að ræða staðsteypt atvinnuhúsnæði fyrir léttan iðnað. Eignin er skráð nr 0110 sem er 169,1 fm á stærð og á tveimur hæðum. Neðri hæðin er skráð 84,5 fm og lofthæð þar er 4,5m. Á neðri hæð er innkeyrsluhurð með 4,2m hæð. Efri hæðin 84,6 fm og lofthæð þar er 2,4-4,5m, útgengt á 5,2fm svalir frá efri hæð. 40 fm sérafnotaflötur undir bílastæði fyrir framan hús.
Tilbúin til afhendingar, þó verður bílaplan malbikað sumarið 2026.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinn Andri Viðarsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is
Húsnæðið selt á byggingarstigi 3. Eigninni skilast í samræmi við skilalýsingu seljanda. Lóð skilast fullkláruð. Olíuskilja er á niðurfalli á neðri hæð.
Einnig er eigandi tilbúinn að leigja húsnæðið.
Frágangur innanhúss:
Allir veggir eru slípaðir, grunnaðir og málaðir. Einungis léttir milliveggir á baðherberginu á 1. hæð og epoxy á gólfi. Gólfið á 1. hæð er vélslípað og rykbundið en gólfin á 2. hæð eru flotuð. Steypt loft er slípað, grunnað og málað. Á 2. hæð eru stálbitar og sperrur, búið verður að ganga frá rakavarnarlaginu en ekki taka loftið niður né klæða. Lýsingin verður fest í sperrur, reiknað er með að kaupandi gangi endanlega frá lofti á 2. hæð. Eldvarnar hurð frá Glófaxa á brunagangi. Aðrar innihurðir fylgja ekki. Bílskúrshurðir frá Vögnum og Þjónustu. Baðherbergi á 1. hæð er búið að koma fyrir upphengdu klósetti og vaski. Eignin skilast með lagnagrind sem auðvelt er að bæta við. Lagnir eru samkvæmt teikningu. Einn iðnaðarblásari er í hverju rými til upphitunar. Reiknað er með ofnum á efri hæð sem kaupandi sér um að koma fyrir. Iðnaðarlampar á efri og neðri hæð ásamt neyðarlýsingu. Kubbaljós fyrir framan hvert bil. Kúpull á baðherbergi niðri. Loftræsting á baðherbergi niðri. Ásamt túðu á efri hæð. Rafmagnstafla er tilbúin í hverju bili. Ljós og bílskúrhurðaropnari verður tengdur. Eignin skilast fullfrágengin að utan sem og lóð verður malbikkuð með niðurföllum og olíuskilja í niðurföllum.. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan með smábáru. Gluggar og hurðir eru úr álklæddu timbri.
Nánari upplýsingar veitir:
Steinn Andri Viðarsson, löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
221 | 93,1 | 69,9 | ||
105 | 106,3 | 89,9 | ||
600 | 166,8 | 82,7 | ||
221 | 369,8 | 189 | ||
201 | 324 | Tilboð | ||
203 | 751 | Tilboð |