Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsileg 3-4ja herbergja íbúð með sérinngangi við Eskiás 1F, 210 Garðabær.
Eignin er skráð 90,0fm og skiptist í forstofu/anddyri á jarðhæð, gengið upp í alrými, eldhús og stofu með útgengi á góðar svalir, 2 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaðstöðu. Sérgeymsla er einnig innan íbúðar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarmaður lgf. í síma 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.
Lýsing:
Forstofa með góðu innbyggðu fatahengi, flísar á gólfum en parketlagður steyptur stigi.
Svefnherbergin 2 rúmgóð með góðum skápaeiningum, eikarparket á gólfum.
Geymsluherbergi með góðri skápaeiningu. Eikarparket á gólfum.
Eldhús glæsilegt og vel skipulagt, innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir (Jeld-Wen Moralt). Eikarparket á gólfum.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Walk-in sturta.
Stofa rúmgóð og einstaklega björt með mikilli lofthæð. Útgengi á svalir. Eikarparket á gólfum.
Svalir eru góðar sem snúa inn í inngarðinn.
Nánari lýsing: Gengið er inn um sérinnagnag á jarðhæð, rúmgóð forstofa með fatahengi, vandaðar flísar, parketlagður steyptur stigi, björt og falleg stofa sem einkennist af mikilli lofthæð með stórum nær gólfsíðum gluggum og útgengi á v-svalirnar. Glæsilegt eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum, eyja með spanhelluborði. Bæði svefnherbergi rúmgóð með fataskápum. Góð geymsla/vinnuherbergi, skápur. Fallegt rúmgott baðherbergi með flottri sturtuaðstöðu, flísar í hólf og gólf, vönduð innrétting, flísar, handklæðaofn, tengt fyrir þvottavél/þurkkara. Vandað eikarparket á gólfum, (hljóðdúkur undir parketi) flísar á forstofu. Allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágreinni.
Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring.Samantekt: Um ræðir einstaklega góða og vel staðsetta eign á þessum vinsæla og fjölskylduvæna stað í Garðabæ þar sem stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu, svo sem leik- og grunnskóla, leiksvæði og fallegt umhverfi. Allar nánari upplýsingar veitir Andrea Lárusdóttir aðstoðarmaður lgf. í síma 861-0125 eða andrea@fstorg.is og/eða Sigurður Gunnlaugsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is.