EIGNAVER 460-6060
Hrísmói 10 - Nýbygging
Glæsilegt og vel skipulagt 179,8 fm parhús á einni hæð á góðum stað í Móahverfi - innst í botnlangagötu. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi. Geymsluskúr 15 fm sem er ekki inn í fermetratölu eignar.
Íbúðin skiptist í forstofur, eldhús, þrjár stofur í opnu rými, fjögur svefnherbergi, þar af er hjónasvíta með fataherbergi og sér baðherbergi, þvottahús og annað baðherbergi. Geymsluloft er yfir þvottahúsi og hjónabaðherbergi. 15 fm geymsluskúr er vestan við húsið.
Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar, dökk brúnar. Steinn frá Steinlausnum verður á bekkjum í eldhúsi og á baðherbergjum.
Hljóðdempandi dúkur í öllum loftum nema í þvottahúsi. Vínyl parket á öllum gólfum nema á baðherbergjum þar er microsement á gólfum og veggjum.
Eignin verður til afhendingar haust/ vetur 2026
Frágangur utanhúss
Húsið skilast fullbúið að utan. Burðarvirki hússins er CLT krosslímdar timbureiningar, einangrað með steinull og klætt með brenndri timburklæðningu (Shou sugi ban).
Þak, þakplata er úr CLT timbureiningum einangrað með steinull og bárujárnsklætt.
Gluggar og útihurðir. Ál/tré glugga- og hurðakerfi í húsinu er frá Rationel í Danmörku. Gluggar eru hefðbundnir ál/trégluggar með tvöföldu einangrunargleri. Gluggar eru settir í eftirá. Gluggar og útihurðir eru álklæddir að utan í svörtum lit og svartir að innan.
Verönd er flísalögð, með niðurfalli og þar eru rafmagnstenglar. Hitalögn er í verönd. Burðarvirki skjólveggja er sjónsteypt / timburveggir. Gert er ráð fyrir að kaupendur geti sett heitan pott á verönd (það verður ídráttarrör fyrir vatnslagnir, rafmagn, niðurfall).
Lóð er flísa- og þökulögð.
Bílatæði steypt bílastæði eru fyrir framan hús. Hitalögn er í bílastæði. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð.
Frágangur innanhúss
Íbúðunum verður skilað með handslökkvitæki, reykskynjurum og lyfjaskáp.
Gólfin eru steypt með ísteyptri hitalögn. Vínilparket verður á alrýmum og microsement á gólfum og veggjum baðherbergja.
Veggir. Innveggir úr CLT krosslímdu timbri og gifsklæddir. Einfalt gips + spónaplata.
Loft eru niðurtekin að hluta. Öll loft eru klædd með hljóðdempandi clipso dúk nema í þvottahúsi.
Innihurðir eru sérsmíðaðar frá Tak innréttingum ehf og spónlagðar í sama lit og innréttingar.
Eldhús, Innrétting er plastlögð dökk brún, sérsmíðuð af Tak innréttingum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu. Helluborð er span. Eldhúsinnréttingin er með mjúklokunarbúnaði og borðplötur eru úr stein frá Steinlausnum. Eldhúsið er hluti af alrými, sem skiptist í eldhús, borðstofu, kvöldstofu og fjölnotarými. Hægt er að setja upp arin í alrými.
Baðherbergi eru tvö, gólf og veggir eru Microsementuð. Innrétting er plastlögð dökk brún sérsmíðuð af Tak innréttingum. Borðplata er úr ljósum stein frá Steinlausnum. Blöndunar- og sturtutæki eru innbyggð, svört að lit, frá Tengi. Salerni eru vegghengd og með innbyggðum vatnskassa. Sturtugólf er einhalla með glervegg.
Þvottaherbergi, Gólf eru með vínylparketi. Sérsmíðuð innrétting frá Tak innréttingum og með skolvask. Borðplata er plastlögð. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi, öll af viðurkenndri gerð.
Hjónaherbergið er með vel skipulögðu fataherbergi og sér baðherbergi og þaðan er gengið út á verönd.
Barnaherbergi eru þrjú og tvö af þeim mjög rúmgóð með stórum fataskápum. Fjölnotarými er fyrir framan barnaálmu, sem möguleiki er að loka af.
Forstofa (bakinngangur), skápar plastlagðir dökk brúnir (frá Tak ehf.). Forstofa við aðalinngang opnast inn á gang.
Háaloft er yfir baðherbergi sem er inn af hjónaherbergi og þvottahúsi.
Rafkerfi: Loxone snjallkerfi er í öllu húsinu (stýrir hita, lýsingu, rafmagni, brunakerfi og loftræstikerfi). Stýrt með snjallforriti í spjaldtölvu sem staðsett er á gangi. Gólfhita- og neysluvatnskerfi með varmaskipti. (Með því að hita upp kalt vatn með hitaveituvatni má halda kísil og öðrum steinefnum í lágmarki).
Ljósleiðari. Búið verður að tengja og ganga frá ljósleiðara.
Ljós. Íbúðinni er skilað með innfelldri lýsingu frá Eltech. Ljós eru dimmanleg.
Bílastæði, stétt og verönd eru með snjóbræðslu sem er lokað kerfi með möguleika á innspítingu.
Vélrænt loftskiptikerfi sér um að hita upp ferskt loft með útkastslofti. Rekstrakostnaður hitunar gæti lækkað og einnig minnkar ryk innandyra verulega með tilkomu þessa kerfis og heilnæmi andrúmslofts eykst. Útsog er tekið úr öllum rýmum hússins. Innloftsstútar eru í alrými, herbergi og á baði, útsog er í blautrýmum, baði, þvottahús, stofu.
Allt efni og teiknaðar þrívíddarmyndir eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).
Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is