Laugardagur 14. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 14. nóv. 2026

Skipholt 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
69.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
63.900.000 kr.
Fermetraverð
924.747 kr./m2
Fasteignamat
59.250.000 kr.
Brunabótamat
42.550.000 kr.
Mynd af Kristján Gíslason
Kristján Gíslason
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1954
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2228486
Landnúmer
103027
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Lóð
10,66
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna:  Skipholt 7, sem er björt og falleg 2ja herb. íbúð á annari hæð með aukinni lothæð að hluta, suður-svölum og bílastæði í lokuðu porti. Íbúðin er samt. 69,1 fm að meðtalinni 6,8 fm geymslu á jarðhæð. Íbúðin er örstutt frá Miðbæ Reykjavíkur, í 3ja hæða litlu fjölbýli, þar sem eru 6 íbúðir, auk verslunar á fyrstu hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu/borðstofu, auk geymslu á jarðhæð.

Eignin Skipholt 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 222-8486, birt stærð 69.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-03, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is


NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi, skáp og hengi. í eldhúsi eru flísar á gólfi, hvít eldhúsinnrétting með dökkri borðplötu, bakarofni í vinnuhæð, span-helluborði með háf fyrir ofan og innbyggðri uppþvottavél. Stofa/borðstofa mynda fallegt alrými með eldhúsinu. Þar er parket á gólfi, aukin lofthæð og þaðan er gengið út á svalirnar. Svalir eru 6,6 fm og snúa í suður. Svefnherbergið er stórt með tveimur gluggum, parket á gólfi og góðum skápum. Baðherbergið er með flísum á veggjum og gólfi, sturtu ásamt hvítri innréttingu með stórum spegli, í kringum vask.  Á jarðhæð er 6,8 fm sér-geymsla með hillum og gluggum. Stigagangur er einstaklega snyrtilegur og húsinu hefur verið vel við haldið. Í lokuðu porti bak við húsið eru bílastæði, eitt fyrir hverja íbúð hússins (óskipt sérnotasvæði). Portinu er lokað með fjarstýrðri bílskúrshurð.

Frábær staðsetning nærri Miðbæ Reykjavíkur. Örstutt í næstu Bónus-verslun og flesta þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/10/202553.800.000 kr.61.700.000 kr.69.1 m2892.908 kr.Já
19/07/201728.150.000 kr.35.500.000 kr.69.1 m2513.748 kr.Já
22/12/201116.700.000 kr.19.600.000 kr.69.1 m2283.646 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 302
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (19).jpg
Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 302
101 Reykjavík
64,1 m2
Fjölbýlishús
21
1168 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 402
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (18).jpg
Vesturgata 66 (Vesturvin 3) íb 402
101 Reykjavík
64,2 m2
Fjölbýlishús
211
1182 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 309
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (20).jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) íb 309
101 Reykjavík
69,7 m2
Fjölbýlishús
21
1118 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 211
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
3-Mynd04.jpg
Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 211
101 Reykjavík
74,8 m2
Fjölbýlishús
211
1068 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin