Háborg fasteignasala ehf og Jórunn lögg.fasteignasali kynna Grensásvegur 1A, nýbygging í lyftuhúsi með bílakjallara. Glæsilega eign á 7.hæð, stærð 139,5 fm, á efstu hæð í 108 Reykjavík. Íbúðin er með 18,6 fm svalir eftir endilangri íbúðinni.Helstu kostir lúxus íbúðar eru:- Íbúðin er upphituð með gólfhita (hitastýring í íbúðunum)
- Gólfsíðir gluggar í íbúðinni
- Aukin lofthæð
- Íbúðin glæsilega innréttuð með dökkum eikar lituðum forstofuskápum
- Eldhúsinnréttingin er með dökk eikar lituð með hvítum skápum
- Inngangshurð yfirfelld 260 cm hæð, innihurðir í 220 cm
- Stærstur hluti innveggja Lemga léttsteypusteinum
- Íbúðin skilast fullbúin með gólfefnum, parketi á gólfum Aroma D3882 10mm/1380/193
- Á baði og þvottaherbergjum eru gólf flísalögð með dökkum Amani Matt flísum 60x120cm.
- Innfeld lýsing/ljós í loftum í stofum, eldhúsi, böðum og forstofu
- Innfelld blöndunartæki á baði og innfeld lýsing bak við spegil og í lofti
Nánar um íbúðina: þegar komið er inn í íbúðina er góður forstofuskápur í forstofu sem er opin inn í hol. Úr holi er á hægri hönd svefnherbergin og baðherbergin. Glæsilega hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi innaf. Baðherbergið er útbúið með vönduðum tækjum og vandað hefur verið til efnisvals. Aukaherbergin tvö eru bæði björt og með góðum fataskápum. Úr öðru þeirra er útgengt út á þaksvalir sem snúa til suðvesturs. Auka baðherbergið er einnig á þessum gangi,
Frá holi til vinstri eru glæsileg alrými, þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja með suðvestur þaksvölum að stærð 39,3 fm. Eldhúsð er glæsilega innréttað með eyju sem hægt er að sitja við og búr innaf eldhúsil Samliggjandi stofa og borðstofa, síðan rúmgott sjónvarpshol.
Eigninni fylgir geymsla í kjallara stærð 10,3 fm. Aðgengi að bílakjallara.
PANTIÐ SKOÐUN,
erum til húsa að Grensásvegi 1. Sýnum með stuttum fyrirvara, Jórunn lögg.fasteignasali jorunn@haborg.is eða síma 845-8958Húsið Grensásvegur 1: er nýbygging og samanstendur af 5. stigahúsum rúmlega 180 íbúð, ásamt verslunarhúsnæði á 1.hæð. Í stigagangi G1A eru 42. íbúðir. Bílakjallari á 3.hæðum sem nýtist öllum íbúðum ef vill, gegn vægu gjaldi. Kostnaður á hverja klukkustund virka daga er kr 250- frá kl 8:00-18:00, á virkum dögum er kr 150-. frá kl 18:00-8:00. En um helgar er kr 120- á klukkustund. Sjá má á heimasíðu www.parka.is nánari upplýsingar um áskriftir.
Húsfélag: Í húsinu er starfrækt húsfélag, það er rekstrarfélag sem sér um udanumhalið. Ekki eru fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags.
Um er að ræða glæsilega íbúð með þaksvölum með útsýni, hjónasvíta með baðherbergi, auka baðherbergi, gott birtuflæði, gólfhita, aukin lofthæð, loftgæði góð, innbyggð lýsing og afhendist fullbúin með gólfefnum. Einstök staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu.Deilibílar. Stefnt er að því að deilibílar verði hluti af nýtískulegu og vistvænu umhverfi á Grensásvegi 1. Þeir verða aðgengilegir fyrir íbúa og starfsfólk fyrirtækja á lóðinni. Fyrirkomulag liggur ekki endanlega fyrir, en markmiðið er leigufyrirkomulag þar sem einfalt app verður notað fyrir aðgengi að bílunum og mögulegir notendur líklega forskráðir.
Lóðin: falleg hönnun á lóðinni þar sem fallegur garður og gott aðgengi fyrir alla er til að njóta saman. Snjóbræðsla undir helstu göngustígum.
Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir Lögg. fasteignasali, í síma 845-8958, eða tölvupóstur jorunn@haborg.is. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.