Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Ásvegur 15 - 201
Mjög vel skipulögð og björt 5 herbergja efri sérhæð á neðri brekku, miðsvæðis á Akureyri í þriggja íbúða húsi. Eignin sem er 125,4 fm. að stærð, hefur verið töluvert mikið endurnýjuð bæði að innan og utan.
Íbúðin skiptist í anddyri á jarðhæð, stigaganga, gangur, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa. Mjög snyrtilegt sameiginlegt þvottahús með útengi út í garð er í kjallara ásamt tveimur sér geymslum.
**Þak endurnýjað**
**Drenað með húsinu**
**Frárennsli endurnýjað**
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísar á gólfi og er frekar rúmgóð með opnu fatahengi. Úr forstofu er gengið niður stiga í sameiginlegt þvottahús og geymslur.
Stigi milli hæða er steyptur, með parket á tröppum og góðum glugga sem gefur mikla birtu í stiga og á gang.
Gangur er með parket á gólfi og tengir öll rými íbúðar saman. Þar hefur verið komið fyrir geymslu við hlið stiga.
Svefnherbergi eru fjögur, þrjú þeirra mjög rúmgóð og nýlegur skápur í hjónaherbergi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á svalir til suðvesturs.
Eldhús og stofa er í opnu rými með parket á gólfi. Nýleg glæsileg háglans eldhúsinnrétting með eyju, í innréttingu er stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og mikið skápa og bekkjarpláss.
Stofa er afar björt, með parket á gólfi og útgengt út á svalir úr stofu, sömu og úr hjónaherbergi.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara ásamt tveimur sér geymslum. Afar snyrtileg sameign, málað gólf, lítil innrétting með vask í þvottahúsi, útsog um viftu og stæði fyrir þvottavél og þurrkara fyrir íbúð. Þar er einnig útgengt út í garð.
Annað:
-Garður er sameiginlegur
-Bílastæði fylgir íbúðinni, möguleiki að bæta við bílstæðum á suðaustur horni lóðar
-Frábær staðsetning, stutt í Hamarkotstún, Sundlaug Akureyrar, skóla og ýmiskonar verslun og þjónustu eins og á Glerártorgi og í miðbæ
Viðhald og endurnýjun að innan sem utan:
2016:
-Drenað með húsinu, verkið unnið af Finn ehf.
-Norðurorka nýtti tækifærið þegar var drenað og skipti um frárennslislagnir frá húsinu að brunni
-Ný eldhúsinnrétting frá HTH og tæki
-Nýtt eikarparket á stofu, eldhúsi og holi.
2017:
-Ný einangrun og plötur í kringum eldhúsglugga og svalahurð
-Ný loftaklæðning í stofu
-Rafmagn endurnýjað í eldhúsi og stofu
-Bílaplan malbikað
2020:
-Ný útidyrahurð og útiljós. Alrými, stofa, eldhús, forstofa og stigauppganga máluð
-Sameignin var máluð og sett ný innrétting, ljós og vaskur í þvottahúsið
2021:
-Gluggar endurnýjaðir í allri íbúðinni fyrir utan suður gluggann í stofunni og baðgluggann sem var endurnýjaður fyrir ca 15 árum
2022:
-Húsið málað að utan
-Skipt um þak, einangrun og járn
-Til stendur að klára þakkantinn
2023:
Einangrun og veggjaplötur endurnýjaðar á útveggjum í hjónaherbergi og í einu barnaherbergi. Nýr fataskápur í hjónaherbergi
Einnig var rafmagn endurnýjað í herbergjunum og þau máluð
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955