Falleg og björt 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi og rúmgóðum bílskúr við Kristnibraut 89 í Reykjavík
Um er að ræða einstaklega fallega og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérinngangi í fjölbýlishúsi við Kristnibraut 89. Eigninni fylgir rúmgóður bílskúr og stór afgirtur garður með sérafnotarétti. Íbúðin er björt og rúmgóð með góðu skipulagi og fallegu útsýni.
Íbúðin samanstendur af rúmgóðri stofu og borðstofu, þremur svefnherbergjum, björtu eldhúsi með góðu skápaplássi, baðherbergi og þvottahúsi innan íbúðar.
* Stór og glæsilegur sólpallur
* Sérinngangur á 1. hæð
* Rúmgóður bílskúr
* Afgirtur garður með sérafnotarétti
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Aþena Líf Pálsdóttir astmf. S:778-7902 eða atena@palssonfasteignasala.is
www.verdmat.isGóð ráð fyrir kaupendur Eignin er skráð samtals 176 fm, þar af er íbúðin 134,7 fm og bílskúr 41,3 fm. Auk þess fylgir 8,3 fm geymsla í sameign.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum, meðal annars hefur eldhús verið endurnýjað, baðherbergi uppfært og nýr sólpallur byggður.
Nánari lýsing:
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er útgengi á stóra vesturverönd sem tengist fallegum sólpalli. Úr stofu er einnig fallegt útsýni.
Eldhús: Rúmgott og bjart eldhús með góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi: Tvö góð svefnherbergi með parketi á gólfi og ágætis skápaplássi. Annað herbergið er út frá stofu en hitt við svefnherbergisgang.
Baðherbergi : Er endurnýjað með góðri innréttingu og "walk in" sturtu
Þvottahús er rúmgótt sem hefur verið endurnýjað. Rúmgóð innrétting með þvottavél og þurrkara í vinnuhæð
Útisvæði:Frá íbúðinni er útgengi á stóra vesturverönd og einnig verönd til suðurs. Eigninni fylgir stór, fallegur og afgirtur garður með sérafnotarétti sem nýtist vel til útiveru. Þaðan er einnig fallegt útsýni.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr með heitu og köldu vatni ásamt sjálfvirkum hurðaopnara. Epoxy gólf.
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Aþena Líf Pálsdóttir astmf. S:778-7902 eða atena@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.