Fallegt og vel skipulagt raðhús með bílskúr á vinsælum og fjölskylduvænum stað við Freyjubrunn 19, Úlfarsárdal.Vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning þar sem örstutt er í leikskóla, skóla, íþróttir og útivist.
* Aukin lofthæð
* Glæsilegt útsýni og rúmgóðar svalir
* 4 rúmgóð svefnherbergi og 2 baðherbergi
* Innbyggður bílskúr
* Fjölskylduvæn staðsetning
* Nýleg Timburverönd, nýlegur heitur pottur og frágrenginn garður
* Möguleiki á svefnherbergi 5
* GólfhitiNánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 215,40 m2
Eignin skiptist í forstofu, bílskúr, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, hol, baðherbergi, stigi, stofa, borðstofa, eldhús, þvottahús, skrifstofuhol og svalir.Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Hol er með parket á gólfi. Útgengt út í bakgarð með rúmgóðum viðar-palli með skjólveggjum. Þar er stór
heitur pottur frá Normex.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi 1 er flísalagt með baðkar með sturtuaðstöðu, wc og innréttingu með handlaug og skúffum.
Stigi er teppalagður.
Geymslurými er undir stiga.
Stofa,
borðstofa og
eldhús eru í björtu, rúmgóðu, opnu rými með fallegu útsýni, mikilli lofthæð og stórum gluggum. Parket á gólfi og útgengt út á skjólgóðar
svalir til suðurs.
Eldhús er með innréttingu og stórri eyju. Bakarofn í vinnuhæð, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi 2 er flísalagt með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og innréttingu með handlaug og skúffum.
Skrifstofuhol er með parket á gólfi og opið með svefnherbergisgangi á efri hæð. Skráð sem geymsla á teikningu.
Þvottahús er rúmgott og flísalagt með innréttingu með skápum. Tengi fyrir þvottavél / þurrkara.
Bílskúr er innangengur úr forstofu. Skráður 29,50 m2.
Fyrir framan hús eru
bílastæði og
verönd með skjólveggjum.
Vel skipulögð fjölskyldueign með frábæru útsýni á vinsælum stað í Úlfarsárdal. Stutt að sækja leikskóla, skóla, íþróttir, útivist og sundlaug er líka á næsta leiti.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.