Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna Myrkholt 2 í Bláskógabyggð.
Fallegt og vel skipulagt 74 fm hús á um 6360,5 m² eignarlóð í einstaklega fallegu og friðsælu sveitaumhverfi.
Húsið var byggt árið 2013 og hentar jafnt sem heilsárshús, frístundahús eða til útleigu. Húsið er í Myrkholti, sem er í hjarta Gullna hringsins þar sem örstutt er í Gullfoss, Geysi og fjölmarga aðra vinsæla ferðamannastaði.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða á netfanginu elka@fstorg.is.
Nánari lýsing
Húsið er bjart, vel skipulagt og nýtir fermetrana einstaklega vel.
Gengið er inn í forstofu. Þaðan liggur gangur sem tengir saman önnur rými hússins.
Bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda notalega heild. Gluggar á þrjá vegu veita góða birtu og fallegt útsýni. Frá borðstofu er útgengt út á timburverönd.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu með fínu skápaplássi. Þar er gert ráð fyrir öllum helstu heimilistækjum, þar á meðal uppþvottavél.
Í húsinu eru þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Baðherbergið er rúmgott og snyrtilegt með walk-in sturtu, innréttingu, salerni og handklæðaofni.
Á gólfum eru parket á meginrýmum en flísar á baðherbergi.
Húsið stendur á um 6360,5 m² eignarlóð (lóðin er ógirt). Gott bílaplan er við húsið og nægt pláss fyrir gesti.
Myrkholt 2 er í Bláskógabyggð þar sem örstutt er í Gullfoss, Geysi, Brúarfoss, Laugarvatn og fjölmarga aðra vinsæla áfangastaði á Suðurlandi. Svæðið er eitt vinsælasta ferðamannasvæði landsins og hentar því afar vel bæði sem heimili, frístundahús eða til útleigu.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.